141. löggjafarþing — 69. fundur,  23. jan. 2013.

raforku-, fjarskipta- og samgöngumál Vestfirðinga.

[16:33]
Horfa

Jónína Rós Guðmundsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka þessa umræðu. Það er þarft að ræða stöðuna sem getur komið upp í okkar hálenda, strjálbýla landi í erfiðum vetrarveðrum. Þá reynir á grunngerðina; rafmagn, vegi og fjarskipti. Nú á 21. öldinni eigum við að reikna með að sú grunngerð sé í lagi og haldi við allar venjulegar aðstæður á Íslandi.

Ég man rafmagnsleysi á álagstímum frá smástelpuárum mínum í Hafnarfirði. Slíkt gerist varla á því svæði lengur. En eru Vestfirðirnir kannski á svipuðum stað í rafmagnsmálum núna og suðvesturhornið var fyrir 45 árum? Finnst okkur það eðlilegt ástand? Er það byggðastefna sem við viljum iðka á Íslandi? Ég vona svo sannarlega að allir svari þeirri spurningu neitandi.

Að mínu mati ætti að forgangsraða í þágu dreifðra byggða innan skynsamlegra marka. Ef einhverjir þurfa gott ástand í rafmagnsmálum, í fjarskiptum og í samgöngum eru það dreifðar, strjálbýlar, fámennar byggðir með skerta þjónustu og þörf fyrir tengsl með öðrum hætti til að bæta upp þjónustuna. Þessar áherslur er að finna hjá Evrópusambandinu, því góða byggðavæna sambandi, þess vegna er ég svo hrifin af því. En það er ljóst að bretta þarf upp ermar og byggja upp grunnstoðirnar á Vestfjörðum og annars staðar þar sem þess er þörf.

Í umræðunni um hliðstætt veður á Norðurlandi ræddi ég mannlega þáttinn í þessum aðstæðum, þörf fyrir áfallahjálp og stuðning. Ég ímynda mér að huga þurfi að þeim þáttum líka á Vestfjörðum þar sem erfiðar minningar um nýlega mannskaða grúfa yfir og hlýtur að valda ugg meðal heimamanna þegar veður geisa sem valdið geta snjóflóðum.

Vinnum nú saman að metnaðarfullri áætlun um uppbyggingu grunngerða samfélagsins í dreifðum byggðum landsins og ekki síst á Vestfjörðum. Það er lífsnauðsynleg aðgerð.