141. löggjafarþing — 70. fundur,  24. jan. 2013.

staða aðildarviðræðna við ESB.

[10:32]
Horfa

Bjarni Benediktsson (S):

Forseti. Mig langar að bera upp spurningu við hæstv. forsætisráðherra sem snýr að aðildarumsókninni að Evrópusambandinu og þeirri þróun sem við sjáum að á sér stað um þessar mundir innan sambandsins. Í gær kom forsætisráðherra Bretlands fram með nýjar hugmyndir um að endursemja þyrfti fyrir hönd Bretlands við Evrópusambandið. Evrópusambandið þyrfti að láta Bretum aftur í té völd í mikilvægum málaflokkum.

Hann kom með þá framtíðarsýn að Evrópusambandið þyrfti að endurhugsa þá leið sem það hefur verið á í átt til frekari samruna endalaust og fara að nýju að færa borgurum í einstökum aðildarríkjum til baka þau völd sem tekin hafa verið til sameiginlegra stofnana. Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Franski forsetinn, forseti framkvæmdastjórnarinnar og fleiri komu fram og sögðu: Nei, þetta er misskilningur hjá breska forsætisráðherranum. Evrópusambandið er ekki matseðill þar sem menn geta valið sér einstaka rétti heldur verður ávallt að taka bara rétt dagsins. Það þurfa allir að lúta sömu reglum og það er ekki hægt fyrir Breta að endursemja og fá frekari undanþágur en gilda samkvæmt hinu sameiginlega regluverki.

Það getur nú varla aukið bjartsýni íslenska forsætisráðherrans á því að hægt sé að finna sérlausnir eða fá einhverjar meiri háttar undanþágur í einstökum köflum eins og allt aðildarferlið virðist byggja á. Það getur ekki aukið bjartsýni íslenska forsætisráðherrans á því að viðræðum um þá kafla sem enn þá standa út af muni ljúka með þeim hætti að Íslendingar nái öllum sínum kröfum fram. Ekkert af því sem fram kom í umræðunni frá leiðtogum Evrópusambandsins í gær sem viðbrögð við ummælum breska forsætisráðherrans gefur tilefni til að ætla að Íslendingar fái einhverja slíka sérlausn.