málefni barna og ungmenna með tal- og málþroskaröskun.
Virðulegi forseti. Það er sérstakt ánægjuefni að vera í dag að afgreiða þennan fjórða lið vinnunnar hér í þinginu í málefnum barna og ungmenna með mál- og talþroskaröskun. Þar hefur verið umfjöllun í nefnd, skýrslubeiðni, fín skýrsla og nú ályktun um aðgerðaáætlun. Ferlið, seiglan og samstaðan eru til mikillar eftirbreytni. Fyrir börn með málþroskaröskun og fjölskyldur þeirra skiptir miklu máli að ferli greiningar og meðferðar sé skýrt og ábyrgðarskipting aðila á hreinu.
Málið er okkar mikilvægasta tjáningar- og stýritæki. Það er þess vegna afar mikilvægt að ef í því eru einhverjir brestir sé brugðist snemma við með öllum tiltækum ráðum til að koma í veg fyrir þann vanda sem annars kann að skapast, félagslega og námslega, hjá barni með tilheyrandi erfiðleikum og kostnaði fyrir fjölskyldu og samfélag. Um það fjallar þetta mál, það er afar vandað og gott svo að við getum hreykin greitt því atkvæði okkar. Vinnuferli þess og innihald eru til stakrar fyrirmyndar og ég þakka öllum þeim sem hafa unnið með mér að málinu, ekki síst 1. flutningsmanni málsins, hv. þm. Unni Brá Konráðsdóttur.