141. löggjafarþing — 70. fundur,  24. jan. 2013.

kosningar til sveitarstjórna.

537. mál
[12:14]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég treysti mér ekki til að svara fyrri spurningunni á afgerandi hátt. Við unnum frumvarpið án hliðsjónar af hugsanlegum stjórnarskrárbreytingum. Áherslur hafa verið uppi um að auka vægi persónukjörs við kosningar, sveitarstjórnarkosningar og í alþingiskosningum og ég er hjartanlega sammála því sjálfur en ég geri mér grein fyrir því að það eru mismunandi sjónarmið þar uppi.

Varðandi orðalag með skírskotun til stjórnmálaflokka og framboða mun það vera svo að hér er stuðst við það orðalag sem er í núgildandi lögum, en það er nokkuð sem nefndin gæti tekið til skoðunar ef ástæða þætti til. En þarna er fyrst og fremst stuðst við lögin eins og þau eru í dag hvað orðalagið varðar.