skipun rannsóknarnefndar um starfsemi lífeyrissjóða.
Virðulegi forseti. Það eru sjö þingmenn á þessari tillögu. Ég sagði að það væru fimm stjórnarþingmenn á henni og svo það sé alveg skýrt þá taldi ég hv. þingmann ekki með stjórnarliðum á þessari tillögu. Það er hins vegar alveg rétt og við erum sammála um að það er mjög undarlegt að setja þetta fram með þessum hætti. Ég segi bara fyrir mitt leyti og velti því aftur upp: Hver er meiningin í raun á bak við þetta?
Það kann að vera að það verði mjög gott að geta bent á það á næstu mánuðum að búið sé að samþykkja þetta og fleira, en þá skulum við hafa í huga að það er ekki búið að tryggja fé í þetta.