dómur EFTA-dómstólsins um Icesave, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Frú forseti. Það er sannarlega ástæða til að taka undir það með tveimur fyrri ræðumönnum að þetta er dagur til að gleðjast og fagna og það er gríðarlegur léttir vegna þess að alltaf lá ljóst fyrir að niðurstaða fyrir dómstólum væri ekki sjálfgefin fyrir fram og það var áhætta fólgin í þeirri leið, jafnvel þó að við teldum okkur hafa traustar lögfræðilegar forsendur til þess að andæfa því að einhver ríkisábyrgð væri á bak við innstæðutryggingakerfin, sjónarmið sem Ísland hélt til haga í umræðunni allt frá byrjun.
Það ánægjulega, til hliðar við hinn lagalega ágreining sem nú hefur endanlega verið settur niður hvað snertir túlkun á hinu evrópska regluverki, er að Landsbankinn gamli er að borga upp þessa reikninga og mun halda áfram að gera það og eiga fyrir þeim að fullu. Sú leið sem í raun og veru varð til vorið 2009, Landsbankaleiðin, að horfa til eigna Landsbankans og láta þær ganga inn á þessa reikninga, er því smátt og smátt að leysa málið.
Vandinn var hins vegar sá, eins og hér hefur komið fram, að Ísland átti engra kosta völ, undir árslok 2008 og framan af ári 2009 og reyndar langt inn á árið 2010, annarra en þeirra að reyna að glíma við þetta mál og koma því frá þannig að málefni landsins kæmust áfram. Það hefur verið farið ágætlega yfir það hér af hvaða ástæðum þetta var. Við áttum enga bandamenn, við fengum hvergi fyrirgreiðslu, samstarfsáætlun okkar við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn sat föst, við vorum undir hryðjuverkalögum fram í júní 2009 o.s.frv. Þess vegna var það auðvitað sem meiri hluti Alþingis samþykkti í byrjun desember 2008 að fela ríkisstjórninni að reyna að leiða málið til lykta með samningum við viðeigandi stjórnvöld, eins og þar sagði, á grundvelli þeirra sameiginlegu viðmiða sem aðilar hefðu komið sér saman um, þ.e. það var litið svo á að menn væru í aðalatriðum komnir að niðurstöðu um það hvernig ætti að leggja málið upp í samningaviðræðum og ljúka því.
Í reynd hétu til þess bærir valdhafar á Íslandi því fyrr, eða í nóvembermánuði, í samstarfsyfirlýsingunni við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn hinni fyrstu að leiða málið til lykta með samningi á næstu dögum, eins og þar var sagt, vegna þess væntanlega að forsenda þess að áætlunin kæmist áfram var sú að Ísland reyndi að leysa málið með samningum.
Margir hljóta að vera hugsi í dag, þegar þessi saga er rifjuð upp og verður rakin, yfir Alþjóðagjaldeyrissjóðnum sem stofnun. Auðvitað voru okkar mál tekin þar í gíslingu, ekki af sjóðnum og ekki af starfsfólki hans, það fullyrði ég, heldur af stjórnarfulltrúum stórra ríkja og öflugra aðila sem létu sig hafa það að stoppa litla Ísland af mánuðum saman og í eina níu mánuði vegna hins óleysta Icesave-máls.
Í öðru lagi hljóta frændur okkar á Norðurlöndunum að þurfa að ræða hvort það var sanngjarnt að skilyrða þátttöku í fjármögnun samstarfsáætlunar við það að Ísland uppfyllti alþjóðlegar skuldbindingar sínar eins og sjálfgefið væri hverjar þær væru — að borga.
Í þriðja lagi sóttu Hollendingar og Bretar þetta mál af mikilli hörku og óbilgirni gegn Íslandi, Hollendingar svo lengi að þeir greiddu einir þjóða atkvæði gegn samstarfsáætlun okkar í tvígang eftir að hún komst af stað aftur.
Fjórði aðilinn sem væntanlega þarf að hugsa sinn gang er Evrópusambandið sem beitti sér eins og það gerði, meira að segja í málaferlunum nú. Hvað varð svo meðal annars Íslandi til bjargar? Götin í þeirra eigin regluverki sem dómstóllinn fer mjög rækilega yfir og sú viðurkenning þeirra á göllum þess þegar þeir eru nú á fullu að breyta því. (Gripið fram í: … ríkisstjórn?)
Það sem hefur skipt máli er að haldið var á því allan tímann skýrt af Íslands hálfu, samanber þingsályktunina sem hér var samþykkt í desember, að þó að Ísland væri tilbúið að leiða málið til lykta með samningum fælist ekki í því viðurkenning á því að við teldum okkur hafa lagalega skyldu til þess. (PHB: Hvenær var það?) Það var síðan gert aftur rækilega í greinargerð með frumvarpinu í júní 2009 þar sem farið var yfir að Ísland hefði viljað koma málinu til dóms. Það var ekki hægt. (Gripið fram í: Þið vilduð það ekki.) Bretar og Hollendingar lögðust alfarið gegn því og það fannst engin leið til þess. Það er reyndar reifað að það kunni að koma til þess síðar að EFTA-dómstóllinn fjalli um gildi tilskipunarinnar en það hjálpaði okkur ekki í þeirri stöðu sem málið var í framan af þessum missirum.
Ég held að það sé afar mikilvægt að niðurstaða EFTA-dómstólsins er endanleg, henni er ekki hægt að áfrýja eins og einhver misskilningur hefur verið uppi um undanfarna daga, að hún hefði lítið gildi. Þvert á móti kemur sér nú vel að við höfum aldrei talað gegn því að við mundum hlíta niðurstöðu þessa dóms og það gildir þá vonandi um gagnaðilana líka þannig að þrætum um hina lagalegu hlið málsins sé þar með lokið og vonandi því þar með sem slíku.
Það er gríðarlega mikilvægt fyrir Ísland, þótt seint sé, að sú óvissa víki frá sem hangið hefur yfir landinu, haft neikvæð áhrif á lánshæfismat okkar og er ein helsta ástæðan sem lánshæfismatsfyrirtækin hafa undanfarin missiri, þrátt fyrir umtalsverðan efnahagsbata, notað til þess að halda okkur í óbreyttu lánshæfismati. Verði þau sjálfum sér samkvæm hljótum við að gera okkur vonir um að lánshæfismat landsins hækki nú í framhaldinu. Þar með er líka einni af stærstu óvissunum sem við höfum burðast með síðan í hruninu vikið frá. Þeim fækkar nú hverri á fætur annarri en þessi hefur kannski verið einna stærst og erfiðust viðureignar. Nú getur batinn haldið áfram á fullri ferð og styrkist vonandi í framhaldinu.
Það er óskaplegur munur og hlýtur að vera okkur öllum mikið gleðiefni að standa nú í þeim sporum að ræða þá hreinu og kláru niðurstöðu morgunsins að Ísland hefur unnið málið til fulls í stað þess að vera í gagnstæðum sporum sem sjálfsagt margir hafa líka undirbúið sig undir að gæti orðið, því miður. Enginn treysti sér til þess að spá um það fyrir fram hvernig þetta færi. Möguleikarnir voru þessir þrír: Við gátum unnið málið, ég segi fyrir mitt leyti að ég þorði tæpast að vonast til þess að það yrði fullur og hreinn sigur, (VigH: Það vitum við.) við gátum tapað því að hluta og við gátum tapað því býsna illa og alvarlega. Þetta er því ótrúlega góð niðurstaða og ánægjuleg í því ljósi.
Margt bendir til þess að gagnaðilar okkar í málinu, Eftirlitsstofnunin og þeir sem tóku þátt í málinu með henni, Evrópusambandið og jafnvel að einhverju leyti Bretar og Hollendingar, hafi verið svo sjálfsöruggir og vissir í sinni trú að þeir hafi ekkert unnið heimavinnuna sína sérstaklega vel á sama tíma og okkar hópur vann frábært starf. Það er ástæða til að taka enn og aftur undir þakklæti til málsvarnarteymisins, Tims Wards og allra sem með honum unnu og hafa landað glæsilegri niðurstöðu sem verður ugglaust skoðuð á spjöldum sögunnar.
Þetta er dagur til að gleðjast, frú forseti, ég ætla sannarlega að láta það eftir mér og vona að við gerum það öll að vera í virkilega góðu skapi. Við sem þjóð höfum unnið mikilvægan sigur í dag. Þetta er enn ein varðan á vegferð okkar inn í betri framtíð og skilur eftir ýmislegt af því leiðinlega sem við höfum þurft að kljást við á undangengnum fjórum erfiðum árum.