dómur EFTA-dómstólsins um Icesave, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Sú niðurstaða sem liggur fyrir núna er fagnaðarefni. Frá upphafi héldum við til haga fyrirvörum um réttarstöðu Íslands en vorum þvinguð til að leita samninga í erfiðri og þröngri stöðu. Við höfðum engan dómstól til að vísa málinu til hér haustið 2008 þegar við fyrst vildum fara þá leið. Ég held að þegar við horfum til baka eigum við að draga þann lærdóm að það er mikilvægt að hefja þjóðarhagsmuni yfir þrætubók íslenskra stjórnmála og við verðum að finna okkur farveg til þess að sameinast um þau mál sem varða lykilþjóðarhagsmuni. (Gripið fram í: Stjórnarskrána.)
Ég þakka sérstaklega samstarfið sem tekist hefur við almannasamtökin í þessu máli og hversu margir létu málið til sín taka og lögðu gott til. Mér er það minnisstætt þegar ég kallaði til liðs fulltrúa Indefence-hópsins og Advice-hópsins eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna 2011. Þá vissu þeir ekki alveg við hverju var að búast en það skipti svo miklu máli að fá hugmyndir þeirra því að þeir höfðu auðvitað eytt ómældum tíma í að kanna málið og rannsaka það og hugsa. Með sama hætti höfðu margir sem studdu samningsgerðina líka lagt sig fram um að kanna ólíkar hliðar málsins. Það var mikilvægt fyrir okkur að ná að nýta það hreyfiafl til góðs fyrir samstöðu meðal þjóðarinnar um málsvörn sem við gátum öll staðið saman um og höfum staðið saman um allt til þessa dags.
Ég vil líka segja að þessi niðurstaða er ekki bara réttlát og sanngjörn fyrir okkur, hún er líka réttlát og sanngjörn fyrir Breta og Hollendinga. Þeir áttu vissulega réttmæta kröfu á því að fá endurgreiddan útlagðan kostnað vegna innstæðutrygginga sinna og þeir hafa fengið það. Neyðarlögin tryggja þeim meira að segja ávinning umfram það sem þeim hefði borið ef við hefðum ekki breytt forgangi innstæðna með neyðarlögum.
Bretar og Hollendingar geta því verið mjög sáttir við sinn hlut og fá nú tryggða til baka frá þrotabúi Landsbankans, hinum rétta greiðanda, allar kröfur sínar vegna innstæðutryggingar, óháð því hversu háar þær eru. Það hefðu þeir ekki fengið hefðu neyðarlögin ekki verið sett. Bretar og Hollendingar geta því vel við unað og niðurstaðan er réttlát og sanngjörn fyrir þá.
Það er okkur hollt að muna að sjálfstæði Íslands hefur alltaf byggst á hugmyndinni um fullvalda ríki sem byggt er á réttarríkinu. Við sóttum hugmyndina um sjálfstætt og fullvalda Ísland til lögfræðilegra raka á sínum tíma. Við héldum fram lögfræðilegum rökum í þessu máli í upphafi en var meinað fyrir ofríki Breta og Hollendinga að koma málinu fyrir dóm eða í lögfræðilegan úrskurðarfarveg. Við máttum sitja undir því að okkur var synjað um aðgang að bráðnauðsynlegri lánafyrirgreiðslu á vettvangi alþjóðagjaldeyrissjóðsins nema við féllumst á það að leita samninga. Við gerðum það en settum ávallt fyrirvara um að við vildum gera það á forsendum réttarríkisins, hins lagalega grundvallar.
Niðurstaðan núna sýnir mikilvægi þess að smáríki taki þátt í alþjóðlegu samstarfi. Við náum rétti okkar vegna þess að við eigum aðgang að hinu evrópska réttarkerfi og getum fengið áheyrn á lögfræðilegum grunni þannig að hin réttu lögfræðilegu rök heyrast og niðurstaðan er fengin, ekki á forsendum ofríkis stórríkjanna, heldur á forsendum málsins sjálfs og við fáum að koma málstað okkar á framfæri.
Það er þess vegna athyglisvert að þó að pólitískur þrýstingur myndist á einhverjum tímapunkti á að smáríki sé borið ofurliði á hinum evrópska vettvangi er hið evrópska réttarkerfi svo vel úr garði gert að það tryggir að við náum rétti okkar að lokum. Það er hin mikilvæga lexía sem við eigum að draga af málinu. Það skiptir okkur máli að standa saman og það skiptir lítið smáríki máli að eiga aðgang að hinu alþjóðlega réttarkerfi þannig að rödd þess heyrist og það þurfi ekki að sæta ofríki af hendi nágrannaríkja.