141. löggjafarþing — 71. fundur,  28. jan. 2013.

dómur EFTA-dómstólsins um Icesave, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[16:06]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F):

Virðulegi forseti. Í dag er stór dagur. Hann er stór fyrir Íslendinga sem unnu glæsilegan sigur fyrir EFTA-dómstólnum. Hann er stór fyrir þá sem trúa því að með staðfestu og málefnalegum málflutningi sé hægt að leiða mál til lykta fyrir þar til bærum dómstólum. Hann er stór fyrir lýðræðið en ekki síst fyrir þá staðreynd að Íslendingar eru þjóð meðal þjóða og þeir munu verja hagsmuni sína á alþjóðavettvangi á sanngjarnan og heiðarlegan hátt.

Fólkið í landinu á þennan sigur. Margir eru þeirrar skoðunar að almenningur geti ekki sett sig inn í erfið mál og tekið afstöðu til þeirra, en almenningur er þegar allt kemur til alls vel að sér, vel upplýstur og vel meinandi.

Hlutverk mitt sem alþingismaður Framsóknarflokksins í fjárlaganefnd var að setja mig vel inn í málið, kanna allar hliðar þess, hlusta á þá sem höfðu sérþekkingu, reynslu og jafnvel bara skoðun á því hvað Icesave-samningarnir hefðu í för með sér; með öðrum orðum að kynna mér efnislega hvaða afleiðingar það hefði í för með sér ef Íslendingar mundu samþykkja Icesave-skuldbindingarnar.

Frá fyrstu mínútu var ég sannfærður um að réttarstaða Íslands væri góð. Við í þingflokki Framsóknarflokksins vorum sannfærð um að Íslendingar ættu ekki að borga meiri fjármuni en voru til staðar í innstæðutryggingarsjóðnum, skoðun sem var samþykkt og staðfest í úrskurði EFTA-dómstólnum í dag. Fjölmargir aðrir voru sömu skoðunar. Á þeim tíma lá þessi skoðun fyrir. Í áliti frá bresku lögmannsstofunni Mishcon de Reya, sem hafði aðstoðað hina svokölluðu Svavarsnefnd, kom mjög greinilega fram að verulegur vafi léki á því að Íslendingar ættu að borga og að réttarstaða þeirra væri góð. En ekki er nóg með að það álit hafi verið hunsað. Viðauka með fyrsta Icesave-samningnum var haldið leyndum fyrir almenningi, viðauka sem innihélt ákvæði sem þýddi tugmilljarða útgjöld fyrir Íslendinga og það langt umfram lagaskyldu.

Hver man ekki eftir hinu svokallaða Ragnars H. Hall ákvæði þar sem Bretum var veittur forgangur í greiðslum úr þrotabúi Landsbankans? Eða þá það ákvæði í samningunum um að greiða vexti langt umfram hinn raunverulega gjalddaga? Þetta voru upplýsingar sem átti að halda leyndum fyrir þjóðinni og tók margra vikna baráttu að koma í fjölmiðla.

Ég ber virðingu fyrir þeim sem voru annarrar skoðunar en ég og þingflokkur Framsóknarflokksins, mörgum öðrum aðilum í samfélaginu, sérstaklega þeim sem þorðu í efnislega umræðu um málið. Það er líka rétt að virða skoðanir þeirra sem vildu semja á réttum forsendum. Það varð hins vegar aldrei raunin. Samningarnir voru allir gerðir á þeim forsendum að Ísland hefði engan málstað að verja, að Íslendingum væri nauðugur kostur að fara á hnén og taka á sig skuldbindingar sem til var stofnað af útrásarvíkingunum.

En skömm þeirra sé mikil sem voru reiðubúnir að samþykkja samningana óséða, þeirra sem vildu leyna þjóðinni upplýsingum sem voru svo mikilvægar að þær hefðu getað haft áhrif á uppvöxt og velferð þjóðarinnar um margra ára ef ekki áratuga skeið. Skömmin er þeirra sem tóku flokksræðið og líf ríkisstjórnarinnar fram yfir hagsmuni þjóðarinnar og ekki síst þeirra sem treystu ekki almenningi til að taka ákvörðun í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Það er makalaus málflutningur að við höfum ekki aðgang að alþjóðlegu réttarkerfi nema í gegnum EES eða ESB. Auðvitað er það ekki staðreynd. Íslendingar eru þjóð meðal þjóða og þeir hafa alltaf aðgang að öllum alþjóðlegum dómstólum. Það er staðreynd sem á að halda til haga.

Við höfum í dag orðið vitni að undarlegum málflutningi ríkisstjórnarinnar, vægast sagt, svolítið eins og hún hafi ekki verið á vettvangi þegar umræðan um Icesave fór fram. Það er hins vegar ánægjulegt að hún vilji gleðjast og vilji halda veislu yfir því að hún skyldi hafa svo innilega rangt fyrir sér. Lærdómur dagsins er sá að fólkið í landinu sér í gegnum skringilegar söguskýringar stjórnvalda og við það vil ég segja:

Virðulegi forseti. Baráttunni fyrir lýðræðislegum vinnubrögðum og hagsmunum þjóðarinnar má aldrei linna. Þetta er góður dagur. Njótum hans saman.