141. löggjafarþing — 74. fundur,  29. jan. 2013.

fyrstu Icesave-samningarnir.

[13:32]
Horfa

atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Frú forseti. Í fyrsta lagi er svar mitt það að því miður buðu aðstæðurnar ekki upp á annað fyrir Ísland en að reyna að leysa Icesave-málið með samningum. Það var alveg ljóst að okkar mál sátu öll föst. Ísland var læst í þvingunaraðstæðum sem menn hafa rifjað upp hér og var m.a. gert mjög vel í Ríkisútvarpinu í morgun. Þess vegna var þetta niðurstaðan á Alþingi í desember 2008 eins og kunnugt er og það breyttist ekkert í þeirri stöðu 2009 og reyndar ekki 2010 heldur. Það má segja að það hafi fyrst verið í aprílmánuði 2010 sem tókst að koma málum Íslands aftur af stað þrátt fyrir þá stöðu sem Icesave-málið var í þegar við fengum aðra endurskoðun samstarfsáætlunarinnar við AGS í gegn. Þannig að mitt svar er að ekki var um annað að ræða en að reyna að takast á við það með þessum leiðum; að leysa það með samningum eins og ákveðið var.

Varðandi það að koma hafi átt samningum óséðum gegn er það ákveðin söguskýring. Veruleikinn var sá að samþykki beggja samningsaðila þurfti fyrir því hvernig með gögnin væri farið og þar af leiðandi þurfti að afla samþykkis fyrir því að gera mætti þau opinber, ef það átti að gera. Þess vegna var framan af reiknað með að þeir yrðu gerðir aðgengilegir sem trúnaðargögn eins og kunnugt er. Það var ekki vegna þess að einn eða neinn óskaði sér þess að þurfa að hafa meiri leynd um þessi mál en þá var bundin af því hvernig samningssambandið milli aðila var.

Ég tel að til að meta málið í ljósi þess hvernig allt hefur gengið síðan verði að skoða stöðuna sem uppi var í málinu á hverjum tíma og eins og henni hefur verið lýst af þeim sem hafa fengist við málið. Og ef menn ætla að rekja hana þurfa þeir að byrja sumarið 2008, haustið 2008, í desember 2008 og svo eftirleiðis. Það skýrir auðvitað þá stöðu sem Ísland var í gagnvart þessu ólánsmáli. (Forseti hringir.) Aðalatriðið er auðvitað að það er loksins frá og við hljótum öll að gleðjast yfir því.