fyrstu Icesave-samningarnir.
Hæstv. forseti. Það þarf auðvitað líka að halda því til haga að þó að menn hafi viljað skoða hvort hægt væri að semja í málinu var því ávallt haldið fram að það ætti ekki að semja um hvað sem er, eins og þáverandi forsætisráðherra Geir H. Haarde hefur ítrekað komið á framfæri í dag og í gær í fjölmiðlum.
En auðvitað þurfum við að draga lærdóma af öllu þessu máli og mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvaða lærdómar það séu helst. Hæstv. ráðherra sagði í fjölmiðlum í gær að ef hann ætti að játa einhver augljós mistök væru það þau að hafa ekki séð fyrir að málið væri þannig vaxið að það mundi snúa upp á sig í pólitíkinni og kalla mætti það dómgreindarskort. Er það í alvörunni þannig að einu mistökin sem hægt er að tala um í þessu máli af hálfu ríkisstjórnarinnar, að mati hæstv. ráðherra, séu þau að hafa gert sig sekan um þann dómgreindarskort að sjá ekki fyrir hvernig málið mundi vinda upp á sig í pólitíkinni? Er það í alvörunni það eina sem við ætlum að læra af Icesave-málinu?