141. löggjafarþing — 74. fundur,  29. jan. 2013.

rannsókn á Icesave-samningaferlinu.

[13:40]
Horfa

atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Frú forseti. Við heyrðum hérna áðan nefndar tölur. Ég aflaði mér upplýsinga um það núna hvernig þeir útreikningar standa sem síðast voru gerðir af þeim sérfræðingum sem hafa annast útreikninga á bak við samningateymin í raun og veru frá upphafi þessa máls, að minnsta kosti á seinni stigum þess. Ég held að ekki sé deilt um að þeir séu einna skárst færir um að leggja á þetta mat.

Síðustu útreikningar voru á þá leið að upphaflegi júnísamningurinn óbreyttur og núvirtur, miðað við 6% af núvirðingarstuðul, hefði kostað 137 milljarða kr. Það er mjög há tala.

Icesave I b, þ.e. Icesave-samningurinn með þeim breytingum sem þingið gerði á honum, mundi kosta núvirtur um 94 milljarða kr. og þriðji samningurinn, kenndur við Buchheit, væri upp á 64 milljarða kr., núvirtur upp á 63 milljarða af því að þar voru samtímagreiðslur eins og hv. þingmaður nefndi og þar af leiðandi breytir núvirðing minna um fjárhæðina. Þetta eru þær tölur sem síðastar hafa komið frá þeim aðilum á hverra útreikninga við höfum reitt okkur undanfarin ár og sem ég hef undir höndum, bara svo það sé sagt.

Ég velti því einnig fyrir mér hvort við eigum ekki að vera í þessari umræðu svolítið með það í huga að við værum að ræða þetta á öðrum nótum ef við hefðum tapað í gær. Við unnum og það er ákaflega gleðilegt og að sjálfsögðu er það niðurstaða, (Gripið fram í.) en þá væri andrúmsloftið í þessu kannski aðeins öðruvísi og spurning um hvert afsökunarbeiðnirnar ættu þá að beinast.

Það er í mínum huga algerlega hafið yfir allan vafa að við hefðum ráðið við þessa samninga, hvern þeirra sem er. En auðvitað er óskaplega gleðilegt að vera laus við þá og vera laus við áhættu (Forseti hringir.) af því að þurfa að efna þá eða eiga í erfiðleikum með að gera það. Við hefðum gert það, sérstaklega með hliðsjón af því að sumir þeirra dreifðu greiðslum langt inn í framtíðina, (Forseti hringir.) með upphafspunkti um 2016 og árið þar á eftir. Það hefði verið viðráðanlegt, en að sjálfsögðu er betra að vera laus við þá úr því að við vorum svona gæfusöm að vinna dómsmálið til fulls í gær.