141. löggjafarþing — 74. fundur,  29. jan. 2013.

breyting á lögum um stjórn fiskveiða.

[13:57]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegi forseti. Hann er ákaflega sérstakur húmorinn hjá hæstv. ráðherra ef þetta var brandari hjá honum. Hann flokkar þá kannski ummæli sín í Viðskiptablaðinu sem brandara líka í ljósi nýjustu niðurstöðu í Icesave-málinu, að hann einn umfram aðra Íslendinga hafi tekið að sér að bjarga Íslandi. (Gripið fram í.) Það er svona álíka brandari. (Gripið fram í.)

Það er alveg rétt að afkoma í sjávarútvegi hefur á heildina litið verið ágæt og góð, sérstaklega hjá stórum fyrirtækjum sem eru mikið í uppsjávarveiðum. En við vitum það líka að í ákveðnum útgerðarformum er afkoman alls ekkert góð og staðan mjög erfið. Við vitum það líka að þessi veiðigjaldshugmynd, eins og hún liggur fyrir núna, kemur verst niður á litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Það þarf ekkert að tala hér um heildarafkomu. Í verslun er mismunandi afkoma milli verslunarfyrirtækja, eðlilega. Það er alveg eins í sjávarútvegi. Það verður að taka tillit til aðstæðna.

Ég heyri það á hæstv. ráðherra, virðulegi forseti, að við megum vænta þess að sjávarútvegsfrumvarpið (Forseti hringir.) komi hér fram. Ég vil þá spyrja hann: Ætlar hann að leggja það fram eins og það var kynnt fyrir þingflokkunum og hefur verið afgreitt þaðan? Gerir hann sér vonir um að þessu máli verði lokið á (Forseti hringir.) yfirstandandi þingi?