141. löggjafarþing — 74. fundur,  29. jan. 2013.

útlendingar.

541. mál
[14:04]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til nýrra laga um útlendinga, lagabálki sem ég tel mjög mikilvæga réttarbót til hagsbóta þeim sem laganna eiga að njóta og eiga að vinna með þau. Ég legg áherslu á að þótt það sé seint fram komið hefur það fengið mjög vandaða umfjöllun þar sem mjög margir aðilar hafa komið að málum.

Þetta frumvarp hefur verið í vinnslu frá því í júlí 2011 en þá var sett á fót nefnd sem skyldi fjalla um málefni útlendinga utan EFTA og EES. Nefndin var skipuð fulltrúum þriggja ráðuneyta, innanríkisráðuneytis, velferðarráðuneytis og utanríkisráðuneytis. Verkefni nefndarinnar var að móta heildstæða stefnu íslenskra stjórnvalda í málefnum útlendinga utan EFTA og EES og var henni gert að hafa það að leiðarljósi að tryggja mannúðlega meðferð stjórnvalda í málefnum útlendinga. Í því skyni skyldi nefndin líta til málsmeðferðarinnar í heild og taka sérstaklega til skoðunar þann tíma sem afgreiðsla mála tekur og áhrif málsmeðferðartímans á umsækjendur um hæli og dvalarleyfi. Skyldi rannsókn nefndarinnar taka til veitingar dvalarleyfa, atvinnuleyfa og eftir atvikum annarra lagafyrirmæla sem beinlínis varða málefni útlendinga utan EES, óháð því hvar viðkomandi verkefni væri vistað í stjórnsýslunni.

Nefndin leitaði víða fanga, átti samráð við fjölda aðila sem tengjast málaflokknum og hélt að auki opinn fund um drög að skýrslu sinni og þær tillögur sem þá voru á vinnsluborðinu. Í júní árið 2012 gerði nefndin síðan grein fyrir niðurstöðum sínum með ítarlegri skýrslu. Samkvæmt stjórnarskrá Íslands skal með lögum skipa rétti útlendinga til að koma til landsins og dveljast hér svo og fyrir hverjar sakir sé hægt að vísa þeim úr landi. Lög um aðgengi útlendinga að Íslandi þurfa því að vera skýr og framsett með eins einföldum hætti og unnt er til að útlendingar geti skilið réttarstöðu sína. Markmið frumvarpsins taka mið af þessum þáttum og mikið er lagt upp úr því að löggjöfin sé skýr og tryggi um leið mannúð gagnvart þeim sem eiga rétt sinn undir henni.

Í grófum dráttum má segja að tvenns konar sjónarmið vegist á varðandi stefnumótun um aðgengi útlendinga utan EES að Íslandi. Á öðrum pólnum er það sjónarmið að Ísland eigi að fella niður landamæri sín og opna samfélagið líka fyrir flutningum fólks sem býr utan EES, þetta sé ekki aðeins gott fyrir Ísland heldur einnig siðferðileg skylda þess í hnattrænum heimi. Á hinum pólnum er hins vegar það sjónarmið að Ísland eigi að vera svo lokað sem unnt er, m.a. til að tryggja innviði samfélagsins. Þessir pólar komu skýrt fram í nefndarstarfinu og í þeirri samráðsvinnu sem unnin var í tengslum við frumvarp þetta.

Þó liggja sjónarmið flestra sem að málaflokknum koma á milli þessara tveggja póla, þ.e. að fjölbreytni sé íslensku samfélagi til góðs en að breytingar verði að eiga sér stað hægt og með tilliti til smæðar samfélags og vinnumarkaðar, takmarkanir þurfi að vera á veitingu dvalarleyfa til útlendinga utan EES en að á sama tíma þurfi löggjöfin að vera nægilega vel úr garði gerð til að mannúðar sé gætt við meðferð þessara mála og að útlendingar sem dveljast hér á landi jafnt sem íslenskir ríkisborgarar geti sameinast sinni nánustu fjölskyldu og ástvinum.

Með þessu frumvarpi er leitast við að feta þennan veg.

Í frumvarpinu er að finna mörg nýmæli sem byggjast á tillögum skýrslu starfshóps útlendinga utan EES. Þó er í einu veigamiklu atriði vikið frá tillögu nefndarinnar og þykir rétt að gera grein fyrir því hér. Í skýrslunni var lagt til að sett yrðu ein heildarlög um útlendinga, að annars vegar lögum um útlendinga, nr. 96/2002, og hins vegar lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002, yrði steypt saman í eina heildarlöggjöf. Markmiðið væri að tryggja að málsmeðferð og umsóknarferli væri ekki óþarflega flókið fyrir útlendinga og að lögin væru þeim aðgengileg. Réttur til dvalar og réttur til atvinnu ætti að vera samtvinnaðri en í núgildandi lögum og mætti þannig lögfesta þá framkvæmd sem þegar er fyrir hendi í samstarfi Útlendingastofnunar og Vinnumálastofnunar.

Jafnframt var lagt til að samhliða einum heildarlögum yrði framkvæmd laganna færð á eina hönd, nánar tiltekið til ráðuneytis útlendingamála, þ.e. innanríkisráðuneytisins, og Útlendingastofnunar í umboði þess. Væri slíkt í takti við þróun mála í nágrannaríkjunum.

Við vinnslu þessa frumvarps var lagt upp með það að sameina framangreind lög í ein heildarlög sem áður segir. Eftir því sem á leið í þeirri vinnu varð ljóst að ávinningur af sameiningunni yrði takmarkaður. Einkum voru sett fram þau sjónarmið af hálfu velferðarráðuneytisins að nauðsynlegt væri að tryggja að vinnumarkaðssjónarmið hefðu áhrif við veitingu atvinnuleyfa og að það yrði ekki tryggt nema með sjálfstæðri ákvörðun Vinnumálastofnunar sem undirstofnunar velferðarráðuneytisins. Málaflokkurinn yrði því ekki fluttur í heild sinni til innanríkisráðuneytisins, og velferðarráðherra hefði eftir sem áður aðkomu að lögunum. Með þessu móti hefði ekki náðst það markmið sem stefnt var að, þ.e. að einfalda löggjöfina og aðkomu stjórnvalda að málaflokknum. Var því tekin sú ákvörðun að leggja að þessu sinni aðeins til heildarendurskoðun á útlendingalögum enda um að ræða aðkallandi breytingar sem ekki þola langa bið.

Vinnu við frumvarp þetta var því fram haldið á vettvangi innanríkisráðuneytisins en taka þurfti mið af lögum um atvinnuréttindi útlendinga þannig að ekki yrði misræmi milli réttar fólks til dvalar annars vegar og atvinnu hins vegar. Þar af leiðandi er að þessu sinni ekki hægt að innleiða aðrar breytingar sem nefndin lagði til og lúta beint að samspili dvalarréttar og atvinnuréttar.

Ég játa að þetta voru mér nokkur vonbrigði enda var það mat þingsins, bæði meiri hluta og minni hluta allsherjarnefndar, árið 2002 að ein heildarlög ættu að gilda um dvöl og atvinnu útlendinga hér á landi. Hið sama sögðu velflestir umsagnaraðilar. Sjálfur er ég sannfærður um að það sé það fyrirkomulag sem við viljum sjá til framtíðar og að vel sé hægt að koma til móts við þau sjónarmið sem fram komu við frumvarpssmíðina þótt löggjöfin verði á hendi eins ráðuneytis. Þetta eru hins vegar stjórnsýslulegar breytingar sem er ekki rétt að gera að aðalatriði og taldi ég áríðandi að leggja til breytingar þær sem settar eru fram í þessu frumvarpi þrátt fyrir að markmiðið um sameiningu næðist ekki að þessu sinni. Árétta ég mikilvægi þess að breytingar þær sem hér er mælt fyrir um þurfa að eiga sér stað, jafnvel þótt við stefnum síðar að því að smíða eina heildarlöggjöf sem tekur til alls málaflokksins.

Við frumvarpssmíðina var sérstök hliðsjón höfð af þeim alþjóðlegu samningum og samþykktum sem Ísland er aðili að og varða málefni útlendinga, nýlegri dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu, norrænni löggjöf um útlendinga, þá sérstaklega norskri, og þróun löggjafar í Evrópu. Þá hafa einnig verið hafðar til hliðsjónar ábendingar og tilmæli um málefni útlendinga frá þeim alþjóðlegu eftirlitsnefndum sem starfa á grundvelli mannréttindasamninga sem Ísland er aðili að. Verði frumvarp þetta að lögum felur það í sér veigamiklar réttarbætur í málaflokknum auk þess sem núverandi framkvæmd yrði fest í sessi með lögum. Með því verður réttarstaða útlendinga hér á landi skýrari og löggjöfin í takti við þær öru breytingar sem orðið hafa á þessu sviði.

Í frumvarpinu eru lagðar til fjölmargar breytingar. Sumar eru tæknilegs eðlis og fela í sér, svo sem áður segir, að styrkja núverandi framkvæmd í sessi eða sníða af vankanta núgildandi laga. Hér ætla ég einkum að víkja að þeim breytingum sem fela í sér ríkar breytingar frá því sem nú er.

Í fyrsta lagi er með frumvarpinu leitast við að gera skilyrði dvalarleyfa skýrari og lögð áhersla á að það dvalarleyfi sem útlendingur sækir um sé í samræmi við tilgang dvalar hans hér á landi. Með þessu er ætlunin að reyna að leysa ýmis álitamál sem komið hafa upp við framkvæmd gildandi laga á undanförnum árum og leitast við að takmarka og skýra matskennd ákvæði eins og kostur er þó að eftirláta þurfi stjórnvöldum eitthvert svigrúm við mat þar sem aðstæður krefjast. Þýðir þetta að dvalarleyfaflokkum fjölgar umtalsvert en þó ekki sjálfkrafa með þeim hætti að einstaklingum sem mynda rétt til dvalar fjölgi að sama skapi. Hins vegar verður skýrara hverjir eiga rétt til dvalar á Íslandi og munu þá færri tilfelli falla undir matskennd dvalarleyfi, svo sem vegna sérstakra tengsla eða í sérstökum og lögmætum tilgangi. Rétt er að vekja athygli á því að í stað þess að eitt ákvæði laganna eigi við um dvalarleyfi fyrir aðstandendur fjallar heill kafli í frumvarpinu um þau og yrði þar mikil bragarbót á í samræmi við það markmið að raunverulegur tilgangur endurspeglaðist í dvalarleyfinu.

Í frumvarpinu er rík áhersla lögð á rétt barna til að dvelja hjá foreldri sínu eða foreldrum eftir því sem kostur er. Verði það að lögum verður réttur barna, eða eftir atvikum foreldra þeirra, til dvalar hér á landi treystur. Þá eru grunngildi samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, barnasáttmálans, áréttuð sem grundvöllur ákvarðana og málsmeðferðar í öllum málum sem lögin ná til.

Verði frumvarpið að lögum mun réttindasöfnun til búsetuleyfis, sem er heimild til óbundinnar dvalar hér á landi, fylgja einstaklingi en ekki dvalarleyfi líkt og nú er. Kemur þetta í veg fyrir að fólk sem af einhverjum ástæðum skiptir um dvalarleyfi meðan það býr hér á landi, svo sem vegna hjónabands, standi á núllpunkti gagnvart réttindasöfnun til búsetuleyfis.

Í öðru lagi eru gerðar nokkrar breytingar á þeim kafla laganna sem fjallar um hæli og umsóknir um hæli. Fyrir það fyrsta er lagt til að sú orðanotkun verði lögð af og þess í stað talað um alþjóðlega vernd og umsækjendur um alþjóðlega vernd. Er það í takti við þær breytingar sem eiga sér stað á alþjóðavettvangi og þykir endurspegla betur málaflokkinn en breytir að þessu sinni ekki neinu um inntak verndarinnar eða málsmeðferðina. Hér skal áréttað að þegar kemur að umsókn um alþjóðlega vernd og veitingu slíkrar verndar er Ísland bundið alþjóðalögum. Hér er því ekki til umræðu hvort Ísland geti valið að taka slíkar umsóknir til meðferðar heldur hvílir sú skylda á herðum allra ríkja sem eiga aðild að flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna.

Nokkrar mikilvægar breytingar verða á málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd frá því sem nú er verði frumvarpið að lögum. Ísland hefur sætt gagnrýni á alþjóðavettvangi, m.a. af hálfu Flóttamannastofnunarinnar, fyrir þá framkvæmd að refsa einstaklingum sem koma til landsins á fölsuðum skilríkjum og óska hér verndar. Samkvæmt flóttamannasamningnum er óheimilt að refsa flóttamönnum fyrir að framvísa fölsuðum eða stolnum skilríkjum ef þeir koma beint af hættusvæði, þ.e. úr landi þar sem aðstæður voru fyrir hendi sem skapa grundvöll fyrir veitingu alþjóðlegrar verndar.

Hljóti umsækjandi sem hefur verið dæmdur til refsingar alþjóðlega vernd hér á landi kann að vera að slíkt sé ekki í fullu samræmi við ákvæði flóttamannasamningsins. Auk þess skilyrðis að koma beint frá hættulegum aðstæðum er áskilið að flóttamaður í slíkri stöðu gefi sig fram án ástæðulauss dráttar og beri fram gildar ástæður fyrir hinni ólöglegu komu eða dvöl.

Rétt er að taka fram að með þessu er ekki átt við að viðkomandi útlendingur þurfi að hafa komið með beinu flugi eða öðrum sambærilegum hætti frá hættusvæði til Íslands enda væri slíkt afar sjaldgæft vegna samgangna. Eðlilegt er að viðkomandi hafi farið í gegnum önnur lönd og jafnvel dvalist þar til skemmri tíma. Hins vegar telst útlendingur sem fengið hefur alþjóðlega vernd í öðru ríki, dvalist í þriðja landi til lengri tíma eða gefið sig fram við stjórnvöld þar og óskað eftir alþjóðlegri vernd almennt ekki vera að koma beint úr hættu nema þá að honum hafi verið hætta búin í því landi sem hann dvaldi eða sótti um vernd í og að sú hætta skapi grundvöll fyrir veitingu alþjóðlegrar verndar.

Frumvarpið kveður sérstaklega á um réttindi umsækjanda um alþjóðlega vernd til að njóta aðstoðar talsmanns meðan mál hans er til meðferðar hjá stjórnvöldum. Talsmaður skal vera lögmaður en þegar um er að mál fylgdarlausra barna eru gerðar ríkari kröfur til talsmanns, þar með talið um að viðkomandi hafi ekki gerst brotlegur við kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga. Þá er í sérstökum kafla fjallað um málsmeðferð einstaklinga í sérstaklega viðkvæmri stöðu, þar á meðal fylgdarlausra barna. Segist umsækjandi um alþjóðlega vernd vera barn skal hann vera álitinn barn við meðferð máls þar til annað kemur í ljós með aldursgreiningu eða öðrum hætti nema annað liggi ljóst fyrir.

Í frumvarpinu er jafnframt að finna nýmæli um móttökumiðstöð fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og eftir atvikum útlendinga í ólögmætri dvöl. Miðstöðin á að stuðla að aukinni skilvirkni og öryggi og tryggja hagsmuni og mannréttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd, m.a. með því að greina strax í upphafi málsmeðferðar þá sem þurfa á sérstakri aðstoð að halda eða eru að einhverju leyti í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Greiningin er ekki aðeins mikilvæg fyrir umsækjandann svo hann fái notið viðeigandi heilbrigðisþjónustu heldur einnig til að stjórnvöld geti uppfyllt rannsóknarskyldu sína. Þá eru ákvæði um þvingunarúrræði gerð skýrari og heimild til notkunar gæsluvarðhalds er þrengd.

Í þriðja lagi eru lagðar til breytingar sem er ætlað að tryggja að málsmeðferð verði sem skilvirkust í málum sem lúta að alþjóðlegri vernd. Íslensk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd bæði heima fyrir og á alþjóðavettvangi fyrir of langan málsmeðferðartíma í málaflokknum. Í þessu samhengi hafa komið fram sjónarmið um að löng málsmeðferð hafi slæm áhrif á umsækjendur um alþjóðlega vernd, bæði líkamleg og andleg. Orða má það sem svo að líf umsækjanda sé á ís meðan á meðferð málsins stendur þar sem hann veit ekki hvort hann dvelur áfram hér á landi eða þarf að fara aftur til heimalands síns eða þess lands sem hann kom frá. Slíkt getur verið slæmt fyrir bæði þá einstaklinga sem hljóta vernd og hina sem ekki hljóta hana. Þá hefur langur málsmeðferðartími í för með sér aukinn kostnað fyrir stjórnvöld vegna þeirrar þjónustu sem stjórnvöld eru skuldbundin til að veita umsækjendum um alþjóðlega vernd meðan á meðferð mála stendur.

Í skýrslu nefndar um málefni útlendinga utan EES er rík áhersla lögð á að málsmeðferð taki sem skemmstan tíma enda skapar óhófleg bið við meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd óvissu fyrir umsækjanda og getur verið íþyngjandi og ómannúðleg. Í frumvarpinu er lagt til það viðmið að meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd á stjórnsýslustigi taki að jafnaði ekki lengri tíma en sex mánuði. Tímaramminn er settur fram til viðmiðunar en ljóst er að við meðferð flóknari mála getur hann orðið rýmri.

Til að tryggja skilvirkari málsmeðferð er lagt til, að norskri fyrirmynd, að heimilt verði að vissum skilyrðum uppfylltum að veita umsækjendum um alþjóðlega vernd dvalarleyfi af mannúðarástæðum ef meðferð málsins hefur tekið óhóflegan tíma og ef ábyrgð á þeim töfum er ekki hans. Með þessu móti er ábyrgð á töfum í stjórnsýslunni sem umsækjandi ber með réttu ekki ábyrgð á færð yfir á stjórnvöld. Þó skal áréttað að veiting þessa leyfis má ekki verða til þess að réttarstaða umsækjanda verði lakari en ella. Umsókn um alþjóðlega vernd ber eftir sem áður að leiða til lykta.

Í fjórða lagi er lagt til að sett verði á laggirnar kærunefnd útlendingamála sem fjallar um kærur í málum á grundvelli þessara laga að undanskildum málum er lúta að brottvísun og frávísun á grundvelli almannahagsmuna, almannaöryggis og skyldra ríkra hagsmuna. Hér er um mikilvægt nýmæli að ræða sem eykur sjálfstæði og óhlutdrægni kærustigsins.

Samkvæmt núgildandi lögum um útlendinga eru ákvarðanir Útlendingastofnunar kæranlegar til ráðuneytis útlendingamála, þ.e. innanríkisráðuneytisins, sem æðra stjórnvalds. Hefur þessi framkvæmd verið gagnrýnd á alþjóðavettvangi, m.a. af Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, vegna meðferðar umsókna um alþjóðlega vernd á þeim forsendum að ráðuneytið geti ekki talist óháður og óhlutdrægur úrskurðaraðili í málum þar sem undirstofnun þess tekur hina kæranlegu ákvörðun. Svipuð sjónarmið hafa ítrekað verið sett fram af hálfu Rauða kross Íslands.

Meiri hluti nefndar um meðferð hælisumsókna taldi að ekki bæri að skipa úrskurðarnefnd á kærustigi, m.a. vegna þess að með þeirri breytingu yrðu tengsl ráðherra og viðkomandi stjórnvalds rofin. Bæri að líta svo á að sjálfstæðir úrskurðaraðilar innan stjórnsýslunnar heyrðu til undantekninga enda sé meginregla íslensks réttar að ráðherrar beri ábyrgð á stjórnarframkvæmdum öllum, samanber 14. gr. stjórnarskrárinnar. Þá benti nefndin einnig á að vegna hæfisreglna sem leiði af stjórnsýslulögum, nr. 37/1993, geti ráðherrar ekki haft afskipti af meðferð eða afgreiðslu einstakra mála án þess að ráðherra og undirmenn hans, starfsmenn ráðuneytisins eða stofnana sem heyra undir það, yrðu vanhæfir.

Mér er alltaf frekar illa við þetta orðalag, undirmenn og yfirmenn. Það á að heyra til liðnum öldum.

Vegna þessa var ekki kveðið á um sjálfstæða úrskurðarnefnd við lagabreytingar sem eru gerðar á grundvelli skýrslunnar árið 2010. Meiri hluti allsherjarnefndar tók undir þessa nálgun í nefndaráliti og taldi nefndin jafnframt rétt að láta reyna á úrbætur sem fólust í lagabreytingunum áður en komið yrði á fót sérstakri úrskurðarstofnun af þessu tagi.

Við vinnslu skýrslu um málefni útlendinga utan EES varð sú spurning hins vegar sífellt áleitnari hvort leggja ætti að þessu sinni til þá breytingu að færa kærur á grundvelli útlendingalaganna undir sjálfstæða úrskurðarnefnd. Fjölmargir umsagnaraðilar, þar með talið Útlendingastofnun og mannréttindasamtök, töldu að það væri til bóta fyrir málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd. Ekki aðeins skal málsmeðferð vera réttlát heldur einnig ásýnd hennar.

Þá ber þess að geta að Noregur, Svíþjóð, Finnland og Danmörk eru öll með sjálfstæða úrskurðarnefnd eða úrskurðardómstól vegna mála er varða útlendinga. Í skýrslu nefndar um málefni útlendinga utan EES var litið svo á að mikil réttarbót fælist í því að sett yrði á fót sjálfstæð úrskurðarnefnd á kærustigi, a.m.k. í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd, en jafnframt kannaði nefndin möguleika á því að slík nefnd tæki til hvers kyns mála sem kynnu að rísa á grundvelli nýrra útlendingalaga, líkt og ætti við í Noregi. Ekki varð einhugur um það í nefndinni hversu víðtækt hlutverk slík úrskurðarnefnd ætti að hafa og vísaði nefndin því til frekari umræðu hvort úrskurðarnefndin skyldi ná utan um öll kærumál á grundvelli útlendingalaga.

Við vinnslu frumvarpsins var vakin athygli á því að hér á landi koma fremur fá mál til úrskurðar ráðuneytis á ári vegna umsókna um alþjóðlega vernd. Næði kærunefndin aðeins til þeirra mála væru því líkur á að það kæmi niður á þeirri fagþekkingu og sérhæfingu sem þarf að vera fyrir hendi við meðferð mála af þessu tagi. Þá er einnig fyrirsjáanleg skörun milli veitingar alþjóðlegrar verndar og viðbótarverndar annars vegar og dvalarleyfis af mannúðarástæðum. Í ljósi þessa er í frumvarpinu lagt til að komið verði á fót sjálfstæðri úrskurðarnefnd, kærunefnd í útlendingamálum, og að allar ákvarðanir Útlendingastofnunar sem teknar eru á grundvelli útlendingalaga séu kæranlegar til þeirrar nefndar að undanskildum ákvörðunum er lúta að brottvísun eða frávísun á grundvelli almannahagsmuna, almannaöryggis eða skyldra ríkra hagsmuna. Þau ákvæði frumvarpsins njóta nokkurrar sérstöðu og slíkar ákvarðanir yrðu þá kæranlegar til ráðuneytisins.

Við útfærslu regluverks um kærunefndina var aðallega litið til Danmerkur og Noregs, líkt og lagt er til í skýrslu nefndar um málefni útlendinga utan EES. Í frumvarpinu er lagt til að ráðherra skipi þrjá nefndarmenn. Formaður kærunefndarinnar skal uppfylla starfsgengisskilyrði héraðsdómara og hafa góða þekkingu á þeim málum sem falla undir lög um útlendinga. Þá hafa aðrir nefndarmenn hvor um sig sitt sérsvið, annar á þeim hluta útlendingalaga er snýr að málefnum flóttamanna og umsækjendum um alþjóðlega vernd og hinn á öðrum þáttum laganna sem varða meðal annars dvöl og búsetu útlendings. Gert er ráð fyrir að formaður hafi starfið að aðalstarfi og skal hann, eða eftir atvikum varamaður í hans stað, taka þátt í hverju því máli sem nefndinni berst. Nefndin er sjálfstæð í störfum sínum á þann hátt að ráðherra og tilnefningaraðilum er óheimilt að skipa nefndinni fyrir eða leiðbeina um lagalega túlkun og beitingu úrræða. Í málum um alþjóðlega vernd verða allar synjanir sjálfkrafa sendar til kærumeðferðar hjá nefndinni nema viðkomandi óski þess sérstaklega að svo verði ekki gert, en í öðrum málum þarf að leggja fram kæru. Þetta á sér fordæmi í danskri löggjöf og vísast til þess að synjanir um alþjóðlega vernd eru nánast undantekningarlaust kærðar til æðra stjórnvalds. Með þessu móti er því hægt að flýta málsmeðferð sem kærufresti nemur.

Það felur í sér hagræði fyrir stjórnvöld en kemur að sama skapi í engu niður á málsmeðferðinni eða réttindum umsækjenda. Málflutningur er almennt skriflegur fyrir nefndinni líkt og í Noregi. Aðilar að kærumáli er lýtur að alþjóðlegri vernd munu þó ávallt einnig eiga þess kost að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni máls eða einstök atriði þess eftir atvikum. Er þetta fyrirkomulag talið nauðsynlegt þar sem í umsóknum um alþjóðlega vernd reynir iðulega á trúverðugleika frásagnar umsækjanda og þarf nefndin að geta lagt sjálfstætt mat á hann. Gert er ráð fyrir að nefndin hafi einnig heimild til að kalla til sín umsækjendur í öðrum málum þar sem rík ástæða er talin til, svo sem þegar vafi er um hvort skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis til aðstandenda eru uppfyllt.

Í fimmta lagi er með frumvarpinu tryggð innleiðing tilskipunar 2004/38/EB, um rétt ríkisborgara ríkja ESB og fjölskyldna þeirra til frjálsrar farar og dvalar, og innleiðing tilskipunar 2008/115/EB, um brottvísun útlendinga í ólögmætri dvöl. Vek ég sérstaklega athygli á því að Ísland er bundið af þessum tilskipunum en þær hafa þegar öðlast gildi og nauðsynlegt er því að þessi ákvæði taki gildi í lögum hið fyrsta.

Hef ég nú gert grein fyrir helstu niðurstöðum frumvarps þessa sem felur í sér setningu nýrra heildarlaga um útlendinga. Ég legg áherslu á að tillögur þær sem frumvarpið byggist á hafa verið unnar í nánu samráði við viðeigandi stofnanir og mannréttindasamtök hér á landi og við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Með frumvarpinu verður stigið veigamikið skref í átt að bættri réttarstöðu útlendinga hér á landi og til mannúðlegri málsmeðferðar. Breytingarnar eru aðkallandi og hvet ég Alþingi til að veita málinu hraða en að sjálfsögðu vandaða afgreiðslu.

Legg ég til að málinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis.