141. löggjafarþing — 74. fundur,  29. jan. 2013.

útlendingar.

541. mál
[14:31]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir þessi mjög svo jákvæðu viðbrögð og ummæli um þetta frumvarp enda átti fulltrúi utanríkisráðuneytisins, eins og fram kom í máli hans, þátt í mótun þeirra tillagna sem liggja að baki frumvarpinu.

Hann spyr sérstaklega um rétt flóttamanna í stríðshrjáðum löndum til að fá fjölskyldu sína til að sameinast. Í þessum lögum er kveðið á um rýmri rétt hvað það varðar en almennt er ég sammála sjónarmiðum hæstv. utanríkisráðherra.