skráð trúfélög.
Forseti. Ég ætla nú ekki að standa lengi í þessum orðræðum við hv. þingmann og allra síst þegar hann er kominn inn í forsendur fjárlaga. Ég treysti mér vel í kapp af ýmsu tagi við Ásbjörn Óttarsson en þó síst um fjárlögin og bakgrunn þeirra því að þar hefur hann starfað af miklu kappi og lagt alúð við þau störf.
Já, það er rétt að framlög til kirkjunnar hafa verið skert, á hverju sem þau byggjast. Framlög til flestrar starfsemi af opinberri hálfu, til mjög margra félagasamtaka, til góðra verka af ýmsu tagi hafa verið skert og hv. þm. Ásbjörn Óttarsson veit vel hvers vegna það hefur þurft að gera og þjóðkirkjan hefur ekki farið varhluta af þeirri skerðingu. Ég ætla ekki að blanda mér í deilur um það hvort það standist samninga eða hvort hún hafi orðið fyrir meiri skerðingum en aðrir. Ég vil bara segja það að milli þeirra fjármála og þess sem hefur farið fram í sveitarfélögum og skólum er engin tenging. Það er ekki hægt að taka þetta saman og tala um einhverja ógn sem kirkjunni stafi af stjórnvöldum í sveitarfélögum eða í Stjórnarráðinu.
Hitt er svo allt annað mál að samningurinn sem ég kannast við að er frá 1997, frá 10. áratugnum, og lögin eru samþykkt 1997 — það má vel efast um þann samning og er reglulega gert. Ég var við umræðu um hann, náði einni umræðu um hann í þinginu og lýsti yfir efasemdum. Ég man að Þorsteinn Pálsson, þáverandi kirkjumálaráðherra, var hissa á því. Ég tel að þann samning ætti að taka upp og haga samvinnu ríkisvaldsins við kirkjulegt starf í landinu með öðrum hætti en gert er ráð fyrir í honum, en ég næ víst ekki að rökstyðja það á þeim litla tíma sem ég á eftir í þessu andsvari.