141. löggjafarþing — 74. fundur,  29. jan. 2013.

Byggðastofnun.

162. mál
[16:31]
Horfa

Frsm. minni hluta um.- og samgn. (Ólína Þorvarðardóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun.

Í frumvarpinu sem hér um ræðir er lagt til að bætt verði við lögin ákvæði um að reglur stjórnar Byggðastofnunar um lán- og ábyrgðarveitingar skuli hafa hlotið staðfestingu ráðherra áður en þær öðlast gildi og er það í samræmi við breytingartillögu í nefndaráliti umhverfis- og samgöngunefndar frá því á 140. löggjafarþingi. Einnig er lagt til að við lögin bætist ný málsgrein sem kveði á um að ákvarðanir Byggðastofnunar sem lúta að veitingu lána eða ábyrgða, og umsýslu þeim tengdri, verði samkvæmt greininni endanlegar á stjórnsýslustigi.

Við umfjöllun málsins kom fram að nái frumvarpið fram að ganga verða ákvarðanir Byggðastofnunar sem lúta að veitingu lána eða ábyrgða ekki kæranlegar til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis líkt og nú er. Minni hlutinn áréttar þau sjónarmið sem komu fram í nefndaráliti umhverfis- og samgöngunefndar á síðasta þingi og varar við því að réttaröryggi borgara og fyrirtækja í landinu sé skert með því að aðilar mála sem varða lánveitingar, ábyrgðir og umsýslu þeirra fái ekki endurskoðun þeirra á tveimur stjórnsýslustigum eins og meginregla stjórnsýsluréttar kveður á um.

Nefndinni er nú sem fyrr mjög umhugað um það sjónarmið og áréttar að stíga þurfi varlega til jarðar þegar endurskoðunarvaldi og ábyrgð æðra setts stjórnvalds gagnvart undirstofnunum sínum er vikið til hliðar. Hins vegar telur minni hluti umhverfis- og samgöngunefndar veigamikil rök fyrir því að þessar ákvarðanir Byggðastofnunar séu ekki kæranlegar til ráðuneytisins og vísar í því sambandi til fagþekkingar starfsmanna Byggðastofnunar sem ekki er að sama skapi til staðar í ráðuneytinu samkvæmt upplýsingum frá báðum aðilum og einnig að starfsemi Byggðastofnunar sé háð eftirliti Fjármálaeftirlitsins samkvæmt lögum um eftirlit með fjármálastarfsemi.

Þar sem ekki er lagt til að hin stjórnsýslulega staða Byggðastofnunar breytist á nokkurn hátt lítur nefndin svo á að ráðuneytið hafi eftir sem áður viðvarandi eftirlitsskyldu gagnvart Byggðastofnun sem þýðir að ráðuneytinu ber að hafa eftirlit með því að ákvarðanir séu teknar á lögmætan, réttmætan og samræmdan hátt, þar á meðal að farið sé að reglum stjórnsýslulaga við töku þeirra ákvarðana.

Það er mat nefndarinnar að með frumvarpinu sé þar með ekki verið að svipta ráðherra yfirstjórnunar- og eftirlitsheimildum sínum gagnvart Byggðastofnun heldur sé aðeins mælt fyrir um að tilteknar ákvarðanir séu ekki kæranlegar til ráðuneytisins og því ekki endurskoðaðar efnislega af hálfu þess.

Í ljósi þeirrar stöðu sem Byggðastofnun hefur sem lánastofnun, þ.e. stofnun sem hefur á hendi mikið opinbert fé, er ljóst að eftirlit ráðuneytisins með störfum stofnunarinnar verður að vera virkt og skilvirkt. Til að árétta þessa eftirlitsskyldu ráðuneytisins og til að efla hana er að finna nýjan málslið í 1. gr. frumvarpsins þar sem kveðið er á um að stjórn Byggðastofnunar setji reglur um veitingu lána og ábyrgða sem skuli hljóta staðfestingu ráðherra áður en þær öðlast gildi. Þar með telur minni hluti umhverfis- og samgöngunefndar að stofnuninni sé settur skýr rammi til að vinna eftir við umræddar ákvarðanir og að eftirlit ráðuneytisins með ákvarðanatöku Byggðastofnunar sé þar með gert markvissara og skýrara og einnig að þetta tryggi að jafnræðis sé gætt við lánveitingar og að sambærileg sjónarmið ráði ákvörðunum um úthlutanir vegna sambærilegra verkefna. Við teljum það mikilvægt.

Þá kom fram í umfjöllun nefndarinnar að ráðuneytið muni í samstarfi við Byggðastofnun leitast við að tryggja fagleg vinnubrögð við ákvarðanatöku Byggðastofnunar, m.a. með því að yfirfara verkferla og málsmeðferð.

Minni hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. Undir þetta álit rita Ólína Þorvarðardóttir, 1. varaformaður og framsögumaður, og hv. þingmenn Margrét Pétursdóttir, Róbert Marshall og Magnús Orri Schram. Það kemur fram í nefndaráliti að hv. þm. Valgeir Skagfjörð, sem er áheyrnarfulltrúi í nefndinni, var einnig samþykkur afgreiðslu þessa máls.