141. löggjafarþing — 74. fundur,  29. jan. 2013.

miðlun upplýsinga og vernd uppljóstrara.

453. mál
[17:41]
Horfa

Flm. (Róbert Marshall) (U) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég hefði kannski frekar átt að setja mig á mælendaskrá með ræðu vegna þess að það voru svo mörg atriði sem hv. þingmaður kom hérna inn á. Ég vil aðeins leiðrétta hv. þingmann varðandi það að ég er ekki að leggja það til í þessu frumvarpi eða í greinargerðinni að sett verði lög um vernd heimildarmanna. Mér er fullkunnugt um að það hefur verið gert, nú síðast með fjölmiðlalögunum. Ég er einfaldlega að telja upp þær leiðbeiningarreglur sem eru í ályktun Evrópuþingsins þar sem m.a. er kveðið á um að það verði sérstaklega gert í aðildarlöndunum.

Ég hóf vinnslu þessa máls í september þegar mér þótti einsýnt að ekki mundi koma mál úr menntamálaráðuneytinu í þessum efnum í tæka tíð. Ég vildi alla vega vera kominn með mál inn í þingið fyrir lokafrest í nóvember. Ég náði því reyndar ekki alveg en lagði málið fram í nóvember og er fyrst að fá að mæla fyrir því núna, sem sýnir nú hverslags hryðjuverk voru unnin hérna á síðustu vikum þinghaldsins fyrir jól og hvílík sóun varð á vinnu fjölda fólks þegar fullt af málum komust ekki á dagskrá og ekki var hægt að mæla fyrir þeim.

Eins og ég sagði veit ég að það er annað mál í vinnslu sem fjallar um afhjúpendur. Ég nota orðið „uppljóstrarar“ vegna þess að það orð er tamara að nota í blaðamennsku á Íslandi, en það er auðvitað bara smekksatriði og engin frágangssök af minni hálfu. Við eigum auðvitað að reyna að búa til löggjöf um þetta sem er eins góð og mögulegt er. Ég verð bara að biðja hv. þingmann velvirðingar á því að mér var ekki kunnugt um blaðamennskuferil hennar. Ég sendi þetta mál á alla þá sem ég taldi að hefðu starfað við blaðamennsku og flestir þeirra brugðust vel við en ég mundi þá reyna að kanna frekar hvort möguleiki sé á því að bæta hv. þingmanni á flutningsmannalista þessa frumvarps af því að við erum sömu skoðunar um nauðsyn þess að ráðast í þessa löggjöf.