141. löggjafarþing — 75. fundur,  30. jan. 2013.

dómstólar o.fl.

12. mál
[16:04]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Hr) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Málið fékk mjög góða yfirferð í allsherjarnefnd. Ég var upprunalega framsögumaður málsins og fékk þar af leiðandi ágætis innsýn inn í hve mikilvægt það er að samþykkja málið. Þetta er mikil réttarbót og liður í að efla gagnsæi í stjórnsýslu á Íslandi. Ég vona að þetta verði þannig mál að allir þingmenn séu tilbúnir til að greiða því atkvæði.