141. löggjafarþing — 75. fundur,  30. jan. 2013.

dómstólar o.fl.

12. mál
[16:04]
Horfa

Siv Friðleifsdóttir (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Þetta er framfaramál. Verið er að breyta því hvernig hægt er að taka mál til endurupptöku, þ.e. Hæstiréttur kemur ekki að því heldur sérstök nefnd. Þetta er því gott mál.

Ég vil sérstaklega vekja athygli á því að það eru níu þingmenn sem flytja það. Þeir eru: hv. þingmenn Álfheiður Ingadóttir, Helgi Hjörvar, Eygló Harðardóttir, Atli Gíslason, Birgitta Jónsdóttir, Árni Þór Sigurðsson, Þráinn Bertelsson, Margrét Tryggvadóttir og Skúli Helgason. Þetta er enn eitt dæmið um það að þrátt fyrir alla þá gagnrýni sem Alþingi hefur nú fengið á síðustu árum hafa vinnubrögð hér að mörgu leyti batnað og við erum að sjá æ fleiri dæmi þess að þingmannamál fái brautargengi ef þau eru góð.

Ekki var mikið um það á sínum tíma, þannig að ég fagna þessu mjög og sé ástæðu til að óska þeim hv. þingmönnum til hamingju með þennan árangur. Vonandi verða þetta vinnubrögð sem við munum viðhafa hér til framtíðar.