141. löggjafarþing — 75. fundur, 30. jan. 2013.
stjórnarskipunarlög.
415. mál
Virðulegi forseti. Það er ekki rétt að allir sérfræðingar sem hafa komið fyrir nefndina telji svo vera. Ég vil benda á álit sem Oddný Mjöll Arnardóttir sendi inn. Það er dagsett 11. eða 12. desember og liggur fyrir nefndinni. Það er alveg ljóst og tekið fram í skýringum að ekki ber að túlka þessi ákvæði í mannréttindakaflanum umfram ákvæði í þeim samningum um mannréttindi sem við erum aðilar að og það hefur ekkert breyst frá því sem nú er.