stjórnarskipunarlög.
Virðulegi forseti. Svo að það komi fram hér afþakkaði ég þetta kvöldverðarboð með Feneyjanefndinni því að ég var upptekin á öðrum stöðum. Þá er þetta komið á hreint sem hafði nú ekki almennilega komið fram áður hver kostnaðurinn væri við Feneyjanefndina. Við skulum þá draga um það bil 20 til 30 milljónir frá þeirri tölu sem ég lagði upp með í upphafi, sem þetta ferli er búið að kosta íslenska skattgreiðendur. Ég talaði um 1.500 milljónir, þannig að ég skal gjarnan lækka þá tölu niður í 1.470 milljónir ef það hjálpar sálarheill ríkisstjórnarinnar.