141. löggjafarþing — 76. fundur,  31. jan. 2013.

orð þingmanns í umræðu um störf þingsins.

[10:36]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti mun leggja sig fram um að sérstök umræða verði um þetta mál ef óskað verður eftir því, en hyggst nú taka fyrir óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra.

Einn hv. þingmaður hefur óskað eftir að taka til máls undir liðnum um fundarstjórn forseta og hv. þm. Kristján Þór Júlíusson tekur nú til máls. Forseti biður þingmenn síðan um að gefa forseta tóm til að ganga til dagskrár.