stjórnarskipunarlög.
Frú forseti. Það er alls ekki rétt að ég hafi ekki fjallað um þá málsgrein sérstaklega, ég fjallaði ítarlega um 3. mgr. 109. gr. (Gripið fram í.) og nákvæmlega um þetta atriði þar sem ég sagði að almennt bann við beitingu vopnavalds í samskiptum ríkja er talin grundvallarregla í þjóðarétti í samræmi við 4. mgr. 2. gr. stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Frá því væru aðeins tvær viðurkenndar undantekningar, annars vegar til sjálfsvarnar, sem byggir á 51. gr. stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna, og hins vegar til valdbeitingar samkvæmt heimildum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem byggir á VII. kafla stofnsáttmálans. Heimildin til sjálfsvarnar, sem m.a. er grundvöllur 5. gr. aðildarsamningsins að Atlantshafsbandalaginu, á sér stoð í grundvallarreglum þjóðaréttar og Ísland er skuldbundið samkvæmt þjóðarétti.
Heimildin til sjálfsvarnar er því augljós, hún er til staðar og það þarf ekki sérstaka heimild Alþingis til þess að grípa til ráðstafana í þeim tilvikum sem það gæti átt við.