stjórnarskipunarlög.
Virðulegi forseti. Ég held að það sem hv. þingmaður sagði í ræðu sinni áðan hafi verið grundvallaratriði, við þurfum að leitast við að ná sem mestum samhljómi í þessu máli. Nú stöndum við hér og það hefur greinilega ekki tekist. Við getum farið í að kenna hvert öðru um, stjórnarandstaðan stjórninni, stjórnin stjórnarandstöðunni, en þetta er bara staðan. Ef við ætlum að reyna að ná einhverjum samhljómi í þessu máli er augljóst að við erum komin á villigötur.
Það blasir við í fyrsta lagi að við höfum ekki þá yfirsýn sem við þurfum. Það er alveg ljóst af lestri meirihlutaálitsins að gríðarlega margt er óunnið, t.d. í auðlindaákvæðinu sem er risavaxið ákvæði þar sem menn eru greinilega ekki búnir að ná landi. Ég held þess vegna að það sé alveg augljóst að þar sem við erum komin í þessari aðferðafræði erum við komin á villigötur. Þá verðum við að horfast í augu við það, viðurkenna það og sjá með hvaða hætti við getum haldið áfram. Ég fullyrði að það er ríkur vilji til ákveðinna breytinga (Forseti hringir.) á stjórnarskrá.