stjórnarskipunarlög.
Virðulegi forseti. Ég þakka þetta andsvar því það er mikilvægt að það komi fram að hv. þm. Einar K. Guðfinnsson sat á þingi þegar mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar var breytt síðast og þá var líka víðtæk sátt um þær breytingar í þinginu. Það var víðtæk sátt um að setja mannréttindakaflann inn í stjórnarskrána eins og hann lá fyrir og var byggður á mannréttindasáttmála Evrópu, eins og hann kallast í daglegu tali. Þess vegna er örugglega mjög einkennilegt fyrir þingmanninn að upplifa nú að það eigi að fara fram með splunkunýja stjórnarskrá í fullkomnu ósætti við þingmenn í þinginu og ég leyfi mér að segja, virðulegi forseti, við meginþorra þjóðarinnar. Það er ekki hægt að troða heilli stjórnarskrá ofan í kok á þjóð sem vill ekki nýja stjórnarskrá. Eins og þingmaðurinn kom að í ræðunni stóðst stjórnarskráin okkar bankahrunið og eins og hæstv. utanríkisráðherra hefur viðurkennt stóðst hún Icesave-deiluna. Það hefur komið fram í ræðu hæstv. utanríkisráðherra. Málið er komið allt of langt. Því miður fóru þeir einstaklingar sem sátu í stjórnlagaráði fram úr sér með því að skrifa splunkunýtt plagg frekar en að gera tillögur að endurbótum á stjórnarskránni eins og þeim var falið í upphafi.
Vegna andsvarsins sem ég fékk frá hv. þingmanni segi ég það að auðvitað á eftir að skapast gríðarleg réttaróvissa verði þetta að lögum, sem ég hef ekki trú á. Það er einkennilegt að verið sé að taka upp þennan mannréttindakafla sem byggist á löggjöf frá Evrópusambandinu og sækja fordæmi alla leið til Suður-Afríku meira að segja og á fleiri staði sem við berum ekki saman við. Það er að mínu mati algjörlega óboðlegt.