141. löggjafarþing — 77. fundur,  11. feb. 2013.

varamaður tekur þingsæti.

[15:01]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Borist hefur bréf frá 4. þm. Suðurk., Atla Gíslasyni, um að hann geti ekki gegnt þingmennsku á næstunni. Í dag, 11. febrúar, tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í kjördæminu, Arndís Soffía Sigurðardóttir. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.