olíuleit á Drekasvæðinu.
Frú forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu. Ég held að hún hafi verið gagnleg og hefði mátt fara fram fyrr og vera ítarlegri. Það er eitthvað farið að fyrnast yfir það að þessi mál hafa auðvitað verið hér á dagskrá með ályktunum Alþingis á 10. áratugnum og svo aftur með lagasetningu í byrjun þessarar aldar og breytingum á þeim lögum síðar, þannig að auðvitað er þetta ekki að koma nýtt upp úr hatti núna.
Það er alveg rétt sem er nefnt að hér þarf að fara fram með gát. Um viðkvæm svæði er að ræða, norðlægar slóðir, og þótt þarna séu kannski ekki hrygningarstöðvar í stórum stíl eins og á við á umdeildum svæðum við Noreg eins og Lofoten og Vesterålen, þá eru fæðuslóðir yfir sumarið fyrir mikilvæga nytjastofna, hafnorrænar aðstæður og svo framvegis.
Eins og rækilega kom fram í máli mínu þá er forgangsréttur leyfishafanna að sjálfsögðu háður áframhaldandi leyfisveitingum Orkustofnunar og því að uppfyllt séu þau skilyrði sem þar verða sett. Einnig að mat á umhverfisáhrifum fari fram og að öllum kröfum teljist fullnægt um viðunandi öryggi við vinnsluna, það er að allt sem snýr að því að tryggja að þarna sé ekki tekin áhætta varðandi náttúru og lífríki, möguleg óhöpp, að til staðar séu viðbrögð við þeim og svo framvegis. Það er í höndum íslenskra stjórnvalda og þar á að nota tímann vel.
Varðandi markmið okkar í loftslagsmálum lít ég svo á að olíuleit á Drekasvæðinu hafi engin áhrif á það að að sjálfsögðu eigum við að halda ótrauð áfram áætlunum okkar um að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis, stuðla að orkuskiptum í samgöngum og svo framvegis. Mesta ógnin liggur fremur í kola- og brúnkolabirgðum heimsins og spurningunni um það hvort öllum þekktum forða þar, sem eru um 2/3 af öllu þekktu jarðefnaeldsneyti, verður mokað upp til brennslu. Olía verður í einhverjum mæli nýtt á komandi áratugum, vonandi sem minnst til brennslu en í meira mæli til iðnaðar. Það er í sjálfu sér aðskilinn þáttur þess máls hvaðan sú olía kemur.
Ísland á að sjálfsögðu að halda ótrautt áfram að leggja sitt af mörkum í þágu baráttunnar gegn hlýnun jarðar og loftslagsbreytingum með því að draga úr losun, stuðla að orkuskiptum og gera allt sem við getum til þess að skila okkar hlut í þeim efnum. Þetta mál hefur ekkert samhengi við það sem slíkt, (Forseti hringir.) nema menn kjósi sérstaklega að setja málið í slíkt samhengi.