141. löggjafarþing — 77. fundur,  11. feb. 2013.

óbeinar auglýsingar hjá Ríkisútvarpinu.

425. mál
[16:24]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Álfheiði Ingadóttur fyrir þessa fyrirspurn. Fyrirspurn hennar er í fjórum liðum. Ég vil taka það fram í upphafi að svar mitt er byggt á upplýsingum sem leitað var eftir hjá Ríkisútvarpinu í tilefni fyrirspurnarinnar.

Hv. þingmaður spyr hvaða reglur gildi um óbeinar auglýsingar í lögum eða starfsreglum innlendrar dagskrárdeildar og auglýsingadeildar Ríkisútvarpsins.

Samkvæmt 11. gr. laga um Ríkisútvarpið frá árinu 2007 er vöruinnsetning óheimil. Í reglum þess um fréttir og dagskrár er tiltekið að beinar auglýsingar megi ekki birtast í fréttum eða fréttatímum og varast skuli óbeinar auglýsingar í fréttum eða öðru dagskrárefni.

Í öðru lagi spyr hv. þingmaður hvað mínútan kosti af leiknum auglýsingum í Kastljósi á fimmtudagskvöldi.

Ríkisútvarpið bendir á að Kastljósþátturinn sé ekki rofinn með auglýsingahléum og auglýsingar séu því ekki seldar í þáttinn. Hins vegar séu seldar auglýsingar fyrir og eftir þáttinn og kostaði sekúndan í þeim auglýsingahólfum 6.990 kr. þann 15. nóvember síðastliðinn. Auglýsing sem var ein mínúta að lengd og birst hafði fyrir eða eftir þáttinn hefði þá kostað 419.400 kr. án virðisaukaskatts.

Þriðja spurningin er um hvaða lög eða reglur gildi um upplýsingar og útsendingu á fréttum, auglýsingum eða skemmtiefni frá áfengisverslununum.

Eins og kunnugt er kemur fram í 1. mgr. 20. gr. áfengislaga, nr. 75/1998, að hvers konar auglýsingar á áfengi eða á einstökum áfengistegundum eru bannaðar. Þetta höfum við rætt í sölum þingsins við endurskoðun áfengislaga. Hefur þar sitt sýnst hverjum, en að minnsta kosti hefur þeirri sem hér stendur fundist að á þessu megi skerpa í áfengislögum.

Í svari Ríkisútvarpsins kemur hins vegar fram að fréttagildi ráði miklu með fréttum. Birting mynda með skemmtiefni geti ráðist af listrænu frelsi. Sem dæmi má nefna að mjög oft er gert grín að auglýsingum. Í umræddu viðtali sem er líklega uppspretta þessarar fyrirspurnar, eins og hv. þingmaður nefndi hér, sem var um knattspyrnumann, var anddyri áfengisverslunar sýnt í bakgrunni án þess að athyglinni væri beint að tilteknum tegundum áfengis. Umrætt myndbrot teldist þá ekki vera auglýsing, heldur grínatriði þar sem líkt er eftir íþróttafréttaviðtali. Af þeim ákvæðum áfengislaga sem ég rakti í upphafi verður ekki séð að bannað sé að sýna fréttaviðtöl sem tekin eru upp í áfengisverslun. (ÁI: Það heyrist ekki til hæstv. ráðherra fyrir hávaða hér í hliðarherbergi, herra forseti.) (Gripið fram í: … reka þetta pakk!)

(Forseti (RR): Forseti biður hv. þingmenn um að halla dyrum hér á hægri hönd og biður hæstv. ráðherra um að halda áfram ræðu sinni.)

Þakka þér fyrir það, virðulegi forseti.

Með vísan til þess sem ég rakti áðan telst umrætt myndbrot ekki auglýsing heldur grínatriði þar sem líkt er eftir íþróttafréttaviðtali. Af þeim ákvæðum áfengislaga sem ég rakti hér í upphafi verður ekki séð að bannað sé að sýna fréttaviðtöl sem eru tekin upp í áfengisverslun, en þegar um slík álitaefni er að ræða er líklegt að dómstólar muni láta tjáningarfrelsi fjölmiðla njóta vafans með vísan í 1. mgr. 73. gr. stjórnarskrárinnar.

Að lokum er spurt um hvað símafyrirtækið Nova hafi greitt fyrir auglýsingu sem sýnd var í Kastljósi 15. nóvember síðastliðinn.

Í svörum Ríkisútvarpsins kemur fram að ekki hafi verið um auglýsingu að ræða, heldur grínatriði sem hafi falið í sér skrumskælingu á auglýsingu í tilbúnu viðtali við þann leikara sem er rödd í auglýsingum frá téðu fyrirtæki. Ekki var greitt fyrir þetta atriði, enda er það mat Ríkisútvarpsins að hvorki hafi verið um beina né óbeina auglýsingu að ræða. Grínatriðið hafi verið undirbúið og sýnt án þess að óskað hafi verið eftir því af hálfu umrædds fyrirtækis. Raunar voru raddir fleiri símafyrirtækja teknar fyrir viku síðar í sama holli þessa sjónvarpsþáttar.