samkeppni á bankamarkaði.
Frú forseti. Hv. þingmaður hreyfir hér sannarlega mikilsverðu máli. Það er rétt og skylt að ræða það á almennum nótum en þegar kemur hins vegar að hinum beinu spurningum um eitt tiltekið mál, eða samruna, vandast svolítið málið fyrir hönd þess sem hér stendur. Þannig er auðvitað um þetta búið að eftirlit með samruna fyrirtækja er samkvæmt samkeppnislögum í höndum Samkeppniseftirlitsins. Það er ekki ráðuneytisins eða ráðherra að taka afstöðu til þess, sérstaklega ekki fyrir fram, hvort einhverjir tilteknir fyrirhugaðir eða mögulegir samrunar fyrirtækja samrýmist samkeppnislögum. Þá mætti segja að línurnar væru farnar að krossast dálítið.
Það er hins vegar hægt að ræða þetta mál út frá þeim vísbendingum sem fyrir liggja, t.d. í tilvitnaðri ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um samruna Sparisjóðs Svarfdæla og Landsbankans. Þar má finna ákveðnar vísbendingar eða leiðsögn um það hvernig lagt er mat á samruna á fjármálamarkaði þó að auðvitað verði að fara yfir hvert einstakt tilvik þegar það kemur upp, en menn geta kannski getið sér svolítið til um hvaða túlkunum er beitt, hvernig Samkeppniseftirlitið metur stöðuna á markaðnum og hvaða áherslur það leggur. Þar eru gagnleg gögn eins og þessi glænýja skýrsla hér, Fjármálaþjónusta á krossgötum, og eldri skýrsla frá árinu 2011 þar sem er alveg klárlega varað við frekari samruna og stjórnvöld eru beinlínis hvött til þess að gefa samkeppnismálum gaum við stefnumótun á fjármálamarkaði. Þessi nýja skýrsla er alveg sama marki brennd. Þar er fjallað um aukna samþjöppun sem sé áhyggjuefni, að Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn séu í lykilhlutverki í viðskiptalífinu með kröfum þeirra á skuldsett og ný og endurskipulögð fyrirtæki, fyrir utan þá sterku markaðsstöðu sem þeir hafa.
Það má kannski draga meginniðurstöðu þessarar skýrslu saman í stuttu máli og segja að hún sé eftirfarandi:
Þrír stærstu bankarnir eru í yfirburðastöðu á markaðnum. Það er ekki nýtt á Íslandi. Aukinn rekstrarkostnaður bankanna gæti bent til þess að samkeppni sé ekki nægilega virk. Yfirburðastaða bankanna felst einnig í því að í margþættri þjónustu í kringum þá eru þeir svo stórir á markaði. Bankarnir koma stundum að máli ekki bara sem banki, lánahafi, lánveitandi, heldur líka kröfuhafi, hluthafi, mögulegur fjárfestir eða ráðgjafi. Hlutverk þeirra er því býsna alltumlykjandi þegar kemur að stöðunni núna.
Það er líka ljóst að sparisjóðirnir eru ekki nægjanlega sterkir í dag til þess að veita umtalsvert aðhald eins og áður var. Það er áhyggjuefni.
Jafnframt er í þessari skýrslu komið inn á það sem þarf að taka alvarlega, að aðgangshindranir kunni að gera nýjum aðilum erfitt fyrir að komast inn á markaðinn. Það er auðvitað líka ljóst að samkeppnin þarf að vera virk ef myndast svigrúm í krafti fákeppni, ég tala nú ekki um ef hún leiðir að einhverju leyti til óeðlilegrar verðlagningar, þá mega ekki vera aðgangshindranir fyrir nýja aðila til að koma inn og veita samkeppni.
Svo er líka fjallað um verðbréfamarkaðinn og hluta hans í fjármögnun. Fjármögnun er veik í dag, þ.e. verðbréfamarkaðurinn hefur lítið vægi þegar kemur að því að veita samkeppni um fjármögnun. Ekki hjálpar það til upp á samkeppnina.
Út úr þessum atriðum öllum má lesa ákveðin skilaboð um það hvernig Samkeppniseftirlitið metur stöðuna á markaði sem og í áður tilvitnuðu áliti um samruna Sparisjóðs Svarfdæla við Landsbankann.
Ég vil líka minna á að Alþingi hefur fyrir sitt leyti tekið af skarið í þessum efnum. Ég lít svo á að lagasetning á Alþingi í fyrravor, vorið 2012, hafi gagngert verið til þess að reyna að styrkja stöðu sparisjóða og gera þeim kleift að halda velli, auðvelda mönnum að leggja þeim til aukið stofnfé, gera þá að vænlegri fjárfestingarkosti og auðvitað skiptir samkeppnisþátturinn þar máli til viðbótar hlutverki þeirra sem staðbundinna fjármálastofnana.
Í skýrslu 3G-hópsins, sem svo er nefnd, lærðra, vísra manna sem skiluðu af sér á haustdögum, Gavin Bingham, Jón Sigurðsson og Kaarlo Jännäri, er líka komið inn á þetta. Þar er varað við frekari samþjöppun á fjármálamarkaði og talið að huga verði vel að því hvernig það verði tryggt, þó svo vissulega sé um leið viðurkennt að markaðurinn er lítill og það kann að vera óhagkvæmt á litlum markaði að reka allt of margar einingar. Verkefnið er að finna eitthvert jafnvægi þarna á milli.
Ég get því miður ekki svarað þessum spurningum með beinum hætti. Ég gæti í raun og veru farið út fyrir mitt verksvið og stöðu mína í þeim efnum undir hvern Samkeppniseftirlitið heyrir, en vona að hv. fyrirspyrjandi sé einhverju nær um það eftir að ég hef reifað hér ýmsar röksemdir úr skýrslum Samkeppniseftirlitsins og leyft mér að túlka þann anda sem í þeim birtist og ég tel að augljóslega (Forseti hringir.) verði ekki misskilinn, að Samkeppniseftirlitið hefur miklar áhyggjur af óhóflegri samþjöppun á fjármálamarkaði.