störf þingsins.
Frú forseti. Ég hjó eftir því áðan í máli hv. þm. Björgvins G. Sigurðssonar, formanns allsherjar- og menntamálanefndar, að hann hafði verið á fundi nú fyrr í dag sem snertir mál FBI og samskipti þeirrar stofnunar við íslensk yfirvöld. Ég held satt best að segja að ég hafi ekki verið á sama fundi því alveg ljóst er að það sem kom fram á þeim fundi var alvarlegt. Að mínu mati er það alvarlegasta inngrip af hálfu innanríkisráðherra í rannsókn máls. Ég kem að því á eftir. (Gripið fram í.) Fyrst og síðast verður að segja að málið einkennist allt mjög af pólitískri taugaveiklun og Kanafóbíu að vissu leyti, [Hlátur í þingsal.] þegar menn fara yfir það.
Það sem kemur fram á fundinum og er undirstrikað af ríkissaksóknara er að réttarstaða Íslendingsins var gerð verri með inngripi hæstv. utanríkisráðherra og hæstv. innanríkisráðherra. Það hefði verið betra í alla staði ef íslensk lögregla hefði verið viðstödd á hlutlausu svæði og stýrt samtalinu sem FBI þurfti að eiga við þennan tiltekna Íslending, því þetta var ekki yfirheyrsla.
Hæstv. utanríkisráðherra kom í veg fyrir að svo yrði. Réttarstaða þessa einstaklings varð því verri með þessu inngripi ríkisstjórnar Íslands. Alvarlegasta atriðið í þessu máli er hvernig atlaga — það er kannski of sterkt til orða tekið — inngrip af hálfu innanríkisráðherra í hið sjálfstæða ákæruvald og í hið sjálfstæða rannsóknarvald sem ríkissaksóknara og lögreglu Íslands er falið í málinu.
Á það að vera þannig að eftir pólitískt mat á því hvernig heimsmálin standa hverju sinni þá ætlar hæstv. innanríkisráðherra eða eftir atvikum hæstv. utanríkisráðherra að skipta sér af rannsókn mála? Alveg skýrt var af hálfu ríkissaksóknara að farið var eftir lögum og reglum íslenskum sem erlendum hvað varðar alþjóðasamninga sem við höfum undirgengist. FBI (Forseti hringir.) var að þeirra mati hér í fullu samþykki og heimild á grundvelli réttarbeiðni lögum samkvæmt. Það er inngrip innanríkisráðherra sem verður til þess að við þurfum (Forseti hringir.) að fara betur yfir það hvort sjálfstæði ríkissaksóknara og lögreglunnar sé einhvern veginn ógnað.