störf þingsins.
Frú forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni Unni Brá Konráðsdóttur og hneykslast á því að við hv. þingmenn fáum ekki að sjá álit Feneyjanefndarinnar (Gripið fram í.) fyrr en búið er að — nú er búið að því, þá er ég kominn með nýjar fréttir. Það hefði verið mjög fróðlegt og gaman að lesa það fyrir fundinn núna þannig að menn gætu vitnað í álitið, en ég mun lesa það strax að loknum fundi.
Ég ætlaði að ræða um Hörpu og þau peningavandræði sem þar eru í gangi. Þannig var að nokkur hópur manna átti draum, 30 ára draum um að byggja tónlistarhús. Þrátt fyrir að 10 milljarðar af byggingarkostnaði hafi horfið í hruninu vegna tapaðra krafna þá standa eftir óleysanleg fjárhagsleg vandamál.
Í Fréttablaðinu í morgun kom fram að 2 milljarða kr. vantar til að forða Hörpu frá gjaldþroti. Reksturinn gengur ekki betur en það. Samt er gert ráð fyrir því að næstu 34 ár eigi skattgreiðendur í Reykjavík og á landinu öllu að greiða tæplega milljarð á ári. Samt vantar pening. Ég þarf ekki að taka fram að þetta er mjög skaðlegt. Það er fólkið á landsbyggðinni sem borgar þetta aðallega og það fer náttúrlega ekki á hverjum degi í Hörpu, það er alveg á hreinu. Þetta er því meira draumur fárra og mér sýnist að draumur fárra sé að breytast í martröð margra, það er skattgreiðenda.