störf þingsins.
Frú forseti. Nýlega kom út skýrsla á vegum Alþýðusambands Íslands um lífskjör á Íslandi. Í ræðu rétt áðan var kallað eftir árangrinum af stjórnarstarfi ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur, ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna. Þessi skýrsla leiðir margt athyglisvert í ljós. Þar eru borin saman lífskjör á Norðurlöndunum, annars vegar árið 2006 og hins vegar árið 2012. Þegar ég segi Norðurlöndunum verð ég að taka fram að Finnland er ekki með og heldur ekki sjálfstjórnarsvæðin, þetta eru sem sagt Danmörk, Noregur, Svíþjóð og Ísland.
Á árinu 2006 voru lífskjör í þessum löndum sambærileg að mati skýrsluhöfunda með þeirri breytingu þó, sem við þekkjum sem hér búum, að það þarf alltaf miklu meira vinnuframlag og lengri vinnudag á Íslandi til að standa undir þessum sambærilegu lífskjörum.
Hrunið hafði gríðarleg áhrif á afkomu heimila og fyrirtækja, og á stöðuna þegar atvinnuleysi stökk upp í nær 10% á einum degi og þegar tekjuhrun á heimilum varð algert. Í þessari skýrslu kemur fram að heimilin brugðust við kaupmáttarrýrnun og skattahækkunum með aðlögun að neyslu, drógu úr munaði og frestuðu endurnýjun á varanlegum neysluvörum.
En fleira kom til. Skýrslan leiðir nefnilega í ljós að þrátt fyrir að það sé enn sláandi launamunur á milli sérstaklega Noregs og Íslands, 50–60% hærri laun þar, er staðan núna sú að vegna skattbreytinga sem þessi ríkisstjórn hefur staðið fyrir er skattbyrði lágtekna langlægst á Íslandi. (Forseti hringir.) Það sem kemur kannski hv. þm. Jóni Gunnarssyni og öðrum sjálfstæðismönnum á óvart er að skattbyrði hátekna er líka lægri á Íslandi en á þessum Norðurlöndum (Forseti hringir.) þrátt fyrir eilífðarsöng um annað. Jöfnuður hefur hér (Forseti hringir.) aukist, það hefur náðst árangur með stjórnarstefnunni.