lengd þingfundar.
Forseti. Ég styð það eindregið að hérna sé fundað fram eftir kvöldi um þetta mikilvæga mál. Í þessu tilfelli er það mjög brýnt. Frýjunarorð eða tilvísanir um að stjórnarliðar hafi ekki verið viðstaddir umræðuna um stjórnarskrána, það litla sem af henni er liðið, eiga ekki við nein rök að styðjast. Ég er hérna með umræðuna frá 31. janúar þar sem við skildum við málið síðast, síðdegis, og þar voru stjórnarliðar mjög áberandi í umræðunni og fjöldi þeirra er enn á mælendaskrá.
Það eru 14 eða 15 þingfundadagar eftir samkvæmt dagskrá og mjög mikilvægt að nýta hverja einustu stund sem gefst til að ræða þetta mikilvæga mál mjög ítarlega, út í hörgul og eins lengi og þurfa þykir. Það stendur ekki annað til en að ljúka þessari umræðu og klára málið. Það er enginn sómi að öðru og það eru engar tryggingar fyrir því að næsta þing, ef við ljúkum þessu ekki, taki málið til meðferðar þá. Við þurfum að ljúka þessu máli, koma því frá okkur þannig að það verði að lögum og geti gengið í þjóðaratkvæðagreiðslu og næsta þing svo (Forseti hringir.) unnið sína vinnu og samþykkt það aftur. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)