141. löggjafarþing — 80. fundur,  13. feb. 2013.

stjórnarskipunarlög.

415. mál
[17:28]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður fór yfir ýmislegt í ræðu sinni en það er eitt atriði sem mig langar að viðra við hv. þingmann. Þegar við ræðum þetta mál er að mínu viti eðlilegt að menn velti því svolítið fyrir sér hvernig haldið hefur verið á málum, efnislegri umræðu. Ég mun gera það í ræðum mínum um málið, að rekja ákveðnar breytingar eða gagnrýni sem hefur komið fram við einstaka greinar og fjalla um þær.

Mig langar að spyrja hv. þingmann út í eitt. Mér skilst — ég verð þá leiðréttur ef það er rangt — að gerðar hafi verið ákveðnar breytingar á frumvarpinu í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd eftir að Feneyjanefndin fékk plöggin til sín, þ.e. að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hafi sett inn ákveðnar breytingar og breytingartillögur sem voru ekki í þeim gögnum sem Feneyjanefndin fékk til umfjöllunar. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort þetta sé ekki í raun vandræðalegt eða skrýtið vegna þess að miklar væntingar voru til nefndarinnar. Það koma reyndar fram í þessari bráðabirgðaútgáfu frá nefndinni, eða þeirri skýrslu sem hún hefur skilað, ákveðnar aðfinnslur við aðferðafræðina og hvað hún fékk í hendur. En þetta hlýtur að skipta máli. Á hverju var Feneyjanefndin akkúrat að gefa álit? Var hún að gefa álit á því sem er lagt fyrir þingið eða því sem var hér fyrir þinginu eða var í umfjöllun nefndarinnar?

Mig langar einnig að biðja hv. þingmann að fara aðeins — af því að ég heyrði það ekki nákvæmlega þegar ég sat hér inni og var að reyna að hlusta — yfir sýn hans á vinnumarkaðinn sem hann nefndi svo sérstaklega í ræðu sinni. Ég viðurkenni að ég missti af þeim kafla þegar ég sat niðri í þingflokksherbergi. Spurning hvort hv. þingmaður gæti gert þetta tvennt fyrir mig.