stjórnarskipunarlög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svörin. Ég verð að viðurkenna að mér finnst hv. þingmaður nálgast málið af mikilli skynsemi því að við þekkjum það eftir umræður sem oft eru í þingsal að við verðum að reyna að leita lausna. Ég held líka að mikilvægt sé að við hugsum það og gerum okkur grein fyrir því að þeir sem gera athugasemdir og koma með ábendingar við frumvarpið eins og það er, einstakar greinar og það sem í því er, hugsunin er ekki sú að það fólk vilji ekki nýja stjórnarskrá eða vilji ekki breyta stjórnarskránni. Það er alls ekki tilgangurinn.
Ég held að margir, bæði fræðimenn og almenningur úti í bæ eins og sagt er stundum, láti sig málið varða og er þess vegna með gagnrýni einmitt til uppbyggingar, þ.e. til leiðbeiningar og uppbyggingar. Ég held að við þurfum að færa það meira inn í það mál sem hér um ræðir.