141. löggjafarþing — 81. fundur,  14. feb. 2013.

tilkynning um skrifleg svör.

[10:32]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Borist hafa bréf frá velferðarráðuneytinu um frestun á því að skrifleg svör berist við fyrirspurn á þskj. 913, um fækkun starfa, og fyrirspurn á þskj. 927, um nefndir, ráð, verkefnisstjórnir og starfshópa, báðar frá Vigdísi Hauksdóttur. Þar sem ekki hefur tekist að afla nauðsynlegra gagna til að veita fullnægjandi svör við þessum fyrirspurnum fer ráðuneytið þess á leit að fá frest til 22. febrúar til að svara fyrirspurn á þskj. 913 og til 1. mars til að svara fyrirspurn á þskj. 927.