utanríkis- og alþjóðamál.
Herra forseti. Ég vil víkja að tali hæstv. ráðherra um Evrópusambandið. Ég vil minna á að hæstv. utanríkisráðherra talar fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og skrifaður texti er fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og þar af leiðandi einnig fyrir hönd ráðherra Vinstri grænna, burt séð frá persónulegum skoðunum hans á málinu.
Segja má að kaflinn um Evrópusambandið geti eiginlega rúmast í eftirfarandi setningum: Hósíanna, hósíanna, dýrð sé Evrópusambandinu, dýrð sé Brussel. Hósíanna og hallelúja.
Þetta er jú barnshjarta hæstv. utanríkisráðherra sem talar en hann talar líka fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Ég vil spyrja hæstv. utanríkisráðherra hvort hann hafi á einhverju stigi og einhvers staðar í ferlinu fengið formlegt loforð, yfirlýsingu af hálfu forsvarsmanna Evrópusambandsins um að hann geti fengið varanlegar undanþágur frá (Forseti hringir.) lögum og regluverki Evrópusambandsins varðandi einstaka þætti í samningum Íslands við Evrópusambandið.