141. löggjafarþing — 81. fundur,  14. feb. 2013.

utanríkis- og alþjóðamál.

593. mál
[12:13]
Horfa

utanríkisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég hef skýrt þessa afstöðu mína í umræðum um stjórnarskrána. Ég hef tekið til máls undir umræðum um stjórnarskrána á fyrri stigum þess máls, ég held fyrir einum tíu dögum, og þá skýrði ég það hvernig ég lít svo á að stjórnarskráin hafi staðist prófið sem Icesave lagði á þjóðina þar sem tveir mismunandi vængir voru mjög sterkir og mikil úlfúð ríkti. Annar vængurinn barðist fyrir samningaleiðinni, meðal annars til að fá gjaldeyrislán til að geta staðið undir efnahagsáætluninni. Hinn, eins og ég segi í formála mínum, hann fylgdi kannski því sem Daríó Fó sagði í leikriti sínu: Við borgum ekki.

Það var galdur stjórnarskrárinnar að hún hafði málskotsákvæðið sem leiddi þessa andstæðu strauma saman og náði því fram að við fengum það besta úr báðum. Og bara svo að það sé algjörlega skýrt hef ég ítrekað lýst stuðningi mínum við það að slíkt málskotsákvæði sé í stjórnarskránni.