141. löggjafarþing — 81. fundur,  14. feb. 2013.

utanríkis- og alþjóðamál.

593. mál
[12:14]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil ítreka síðari spurningu mína til hæstv. ráðherra varðandi ákvæðið í stjórnarskrárfrumvarpinu um meðferð utanríkismála, 109. gr.

Við hv. þm. Bjarni Benediktsson segjum í nefndaráliti okkar — ég ætla að fá að lesa það upp fyrir hæstv. ráðherra, með leyfi forseta:

„Ákvæði á borð við það sem meiri hlutinn leggur til gæti tafið verulega eða mögulega gert íslenskum stjórnvöldum ókleift að taka þátt í störfum Norður-Atlantshafsráðsins þegar bíða þyrfti eftir þinglegri meðferð.“

Nú vísa ég til þess sem hæstv. ráðherra segir í skýrsluinnganginum um hversu mikilvægt það hafi verið fyrir hann sem ráðherra að geta leitað álits, eins og hann segir, í flóknum málum sem taka þurfti ákvarðanir um með stuttum fyrirvara, og nefnir Líbíu sem dæmi.

Hvernig fer það saman að berjast fyrir því að svona ákvæði fari inn í stjórnarskrá, sem kemur í veg fyrir einmitt það sem hæstv. ráðherra er að fagna, (Forseti hringir.) og að styðja, að minnsta kosti í orði, áframhaldandi veru okkar í Atlantshafsbandalaginu en samt að fara fram með stjórnarmeirihlutanum (Forseti hringir.) með svona ákvæði?