utanríkis- og alþjóðamál.
Forseti. Við erum sammála um það, við hv. þingmaður, að þegar kemur að fullveldisframsali erum við farin að tala um mjög stór og mikilvæg álitamál. Það er jú svo að ákveðið fullveldisframsal átti sér stað í tengslum við EES-samninginn enda var hann á sínum tíma umdeildur og enn deilt um það hvort í sjálfu sér hefði þurft á þeim tíma, kannski ekki síst í ljósi þess sem gerðist í framhaldinu, að gera breytingar á íslensku stjórnarskránni. Það er borðleggjandi að engum dettur í hug að við gætum gengið í Evrópusambandið án þess að slíkar breytingar yrðu gerðar. Mínar ábendingar hér áðan snerust um það að með því framsali valds sem mundi fylgja inngöngu í Evrópusambandið væru menn að feta sig inn á slóð sem fyrirsjáanlegt er að leiðir alltaf til meira og meira fullveldisframsals.
Ég nefndi í ræðu minni áðan dæmi um ríkisfjármálasáttmálann þar sem ríkin eru komin í þá stöðu að þau geta ekki annað en haldið áfram að framselja vald. Í því tilviki vegna þess að þau hafa tekið ákvörðun um að taka upp hina sameiginlegu mynt fyrir innri markaðinn. Þau voru þvinguð til þess. Þess vegna breyttist það á örfáum árum úr þeirri stöðu að óhugsandi var að ríkin mundu deila ákvörðunarvaldi varðandi sín ríkisfjármál með öðrum ríkjum yfir í það að það var óumflýjanlegt á einungis nokkrum missirum að deila valdi um endanlegar ákvarðanir varðandi ríkisfjármál allra ríkjanna.
Þetta er bara eitt lítið dæmi um það að þegar menn stíga inn í svona djúpt samstarf á sífellt fleiri sviðum, mun það smám saman leiða til meira og meira framsals ríkisvalds, sem hlýtur að vera þungamiðjan í umræðunni um Evrópusambandið fyrir okkur Íslendinga.