141. löggjafarþing — 81. fundur,  14. feb. 2013.

utanríkis- og alþjóðamál.

593. mál
[12:47]
Horfa

utanríkisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka formanni Sjálfstæðisflokksins einkar málefnalega og prýðilega ræðu. Auðvitað er það svo að við erum ekki sammála um alla hluti, en mér þótti samt vænt um það að hann fór viðurkenningarorðum um suma þætti í utanríkisstefnunni sem hefur verið bryddað upp á.

Ég er sömuleiðis algjörlega sammála honum um það að nauðsynlegt er að þingið komi með sterkari hætti inn í þróunarsamvinnuna, m.a. til þess að fylgja eftir aðhaldshlutverki, því þarna er um mikið fé að ræða. Um það höfum við verið sammála áður.

Ég er þakklátur hv. þingmanni fyrir að hafa bryddað með þessum hætti upp á framsali valds og breytingum á stjórnarskrá. Hv. þingmaður segir að það sé séð fyrir að t.d. með þeim breytingum sem eru að verða með ríkisfjármálasáttmálanum muni æ meiri völd sogast til Evrópusambandsins. Ég er honum ekkert endilega sammála um það. Ég tel að það framsal sem í því felst sé ekki óhæfilegt og mundi litlu máli skipta fyrir vel rekinn ríkissjóð eins og okkar, svo einfalt er það nú. Þeir sem hafa sín mál í lagi komast vel af með það. Eftir sem áður hafa þjóðþingin síðasta orðið, það er bara svo.

Hitt sem hv. þingmaður nefndi, fjármálaeftirlitskerfið, er miklu meira framsal á fullveldinu. Þá skiptir máli að það eru þættir sem við erum nauðbeygðir til að taka upp á meðan við erum innan EES. Hv. þingmaður lýsti því yfir að hann vill ekki framselja, ef ég skildi hann rétt, vald til stofnana sem við eigum ekki aðild að. Þá er komin upp ansi kröpp staða. Ef Ísland gerir það ekki, skirrist við, er ekki bara hægt að taka úr sambandi þá mikilvægu parta innri markaðarins sem hann nefndi, fjármagnsþáttinn og jafnvel frelsi til að flytja fjármagn, heldur gerist það sama um Noreg og Liechtenstein. Á meðan við tökum það ekki upp geta þau ekki tekið það upp. Þá er komin upp kreppa í EES. Það gæti leitt til þess að við mundum enda með einhverjum hætti utan EES.

Hvað vill hv. þingmaður gera þá? Jú, hann sagði um daginn: (Forseti hringir.) Þá skulu menn skoða tvíhliða samninga. En eins og ég sagði í fyrri ræðu minni í dag er Evrópusambandið þar (Forseti hringir.) komið á endastöð.