141. löggjafarþing — 81. fundur,  14. feb. 2013.

utanríkis- og alþjóðamál.

593. mál
[14:35]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta yfirferð yfir skýrsluna út frá hans sjónarhorni. Hann er formaður hv. utanríkismálanefndar. Nú vil ég spyrja hann: Ef það næst mjög góður samningur, samningur eins og hv. þingmaður getur ímyndað sér hann bestan við Evrópusambandið, mun hann þá ráðleggja fólki að greiða atkvæði með þeim samningi í þjóðaratkvæðagreiðslu og mun hann sjálfur greiða atkvæði með þeim samningi og ganga í Evrópusambandið?

Þá er önnur spurning til hv. þingmanns: Hafa náðst einhverjar varanlegar undanþágur í þeim ellefu köflum sem búið er að loka? Hafa Íslendingar náð einhverjum varanlegum undanþágum?

Að síðustu vil ég fjalla um fríverslunarsamning við Kína. Í skýrslu utanríkisráðherra stendur, með leyfi frú forseta:

„Fríverslunarviðræður á milli Íslands og Kína hófust í apríl 2007 og voru fjórar lotur haldnar fram á vor 2008. Viðræður lágu síðan niðri um nokkurt skeið af margvíslegum ástæðum en í heimsókn forsætisráðherra Kína til Íslands í apríl 2012 sammæltust þjóðirnar um að taka upp þráðinn að nýju og stefna á að ljúka viðræðum sem fyrst.“

Ein af þessum margvíslegu ástæðum er sennilega sú að Ísland sótti um aðild að Evrópusambandinu. Ef Ísland er aðili að Evrópusambandinu gerir það náttúrlega enga samninga við Kína. Utanríkisþjónusta í Kína er eflaust fjölmenn og mjög vel búin fólki og þeir átta sig vel á öllum alþjóðahreyfingum. Getur verið að áhugi Kínverja á því að vilja gera fríverslunarsamning við Ísland byggi á því að þeir viti að Ísland muni aldrei ganga í Evrópusambandið? Eða telja þeir sig vita að Ísland muni aldrei ganga í Evrópusambandið og allt það sem við erum að gera kosti bara peninga?