utanríkis- og alþjóðamál.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar upplýsingar og afstöðu hans í málinu, hún er skýr. En nú hefur orðið breyting á. Hv. þingmaður er ekki lengur í ríkisstjórninni, hann er reyndar ekki lengur í þingflokki VG þótt hann sé enn þá í VG.
Þá vil ég spyrja: Hefur hv. þingmaður orðið var við að samningsafstaðan, sú nálgun á málinu sem hann barðist fyrir á sínum tíma þegar hann var í ríkisstjórn, hafi breyst? Eru aðrar áherslur? Er verið að nálgast samningsmarkmiðin með einhverjum öðrum hætti?
Ég vil líka spyrja hv. þingmann: Voru sett fram einhver drög að samningsmarkmiðum til dæmis meðan hann var í stóli hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra? Ég vil líka inna hann eftir því hvernig hann hafi orðið var við að unnið sé að undirbúningi samningsmarkmiða Íslendinga. Er gert ráð fyrir því að við aðlögum okkur smám saman að hinni nýju löggjöf, sem yrði þá auðvitað að taka gildi frá fyrsta degi, eða er enn þá verið að halda sig við að fá klára undanþágu frá (Forseti hringir.) samningskaflanum um landbúnaðarmál í heild sinni?