141. löggjafarþing — 81. fundur,  14. feb. 2013.

utanríkis- og alþjóðamál.

593. mál
[16:07]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég má til með að byrja á því sem hv. þingmaður sagði, að það væri allt önnur ásýnd á utanríkismálum Íslendinga og hún fagnaði því. (Utanrrh.: Viðurkenndu það bara, viðurkenndu það.) Ég verð að segja og taka undir að hálfu leyti að það er allt önnur ásýnd á utanríkisstefnu Íslendinga. Hún hefur ekki í lengri tíð verið í meiri ágreiningi milli þeirra sem stjórna landinu, að því leytinu til tek ég undir það.

Mig langar að spyrja hv. þingmann vegna orða hennar um Evrópusambandið og afstöðu hennar í þeim málum. Við erum í sama kjördæmi og ég hef heyrt hv. þingmann tala um Evrópusambandið. Mig langar því til að spyrja hana hreint út: Er hún sátt við stöðuna á aðildarviðræðunum, þetta svokallaða hlé? Hvað vildi hún gera? Væri hún tilbúin að leggjast á árarnar með okkur hinum um að leyfa þjóðinni að taka ákvörðun um það hvort viðræðum skuli haldið áfram? Er þingmaðurinn tilbúin til að leggja þetta fyrir þjóðina? Hv. þm. Helgi Hjörvar sagði að það væri ekki tímabært, að þjóðin hefði ekkert um þetta að segja núna. Mér fannst liggja í því dálítil vantrú á íslenskri þjóð. Ég vil spyrja hv. þingmann vegna þess að ég veit að ég og hún erum ekki svo ósammála í þessu efni eins og í sumu öðru: Hvernig vill hún sjá framhald þessa máls, Evrópusambandsumsóknarinnar?