utanríkis- og alþjóðamál.
Frú forseti. Ég vil í upphafi máls míns þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir hans ágætu og yfirgripsmiklu skýrslu. Ég hefði gjarnan viljað hafa meiri tíma til þess að lesa hana í þaula og fara ítarlegar yfir hana en hafði ekki.
Mig langar hér í stuttri ræðu að nefna mál norðurslóða sem eru á næstu árum og missirum að verða kannski stærstu málin í utanríkispólitík okkar. Vægi norðurslóðamála, ef svo má segja, mun halda áfram að aukast og þar mun Ísland, ef rétt er á málum haldið, fá nokkurt hlutverk. Ég vil í því sambandi nefna sérstaklega að staðsetningarinnar vegna getur Ísland gegnt töluverðu hlutverki í nokkrum málum, m.a. björgunarmálum á þessum slóðum þar sem við höfum á undanförnum áratugum öðlast nokkra þekkingu og sérstöðu.
Ég hef í nokkur skipti flutt mál hér á þingi um svokallaðan björgunarskóla. Þar er einmitt komið inn á það sem hv. þm. Þór Saari nefndi áðan, þ.e. þá þætti utanríkisþjónustunnar sem snúa að þróunarsamvinnu. Við stöndum til að mynda ágætlega að rekstri nokkurra háskóladeilda Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Mín hugmynd hefur gengið út á það að bæta við einni háskóladeild í viðbót, þ.e. björgunarskóla Sameinuðu þjóðanna. Það er því mjög gleðilegt að sjá í skýrslu ráðherra að slíkar þreifingar séu farnar af stað, þ.e. um aukna samvinnu í björgunarmálum, og þegar hefur verið ýtt úr vör formlegu samstarfi í samræmi við samning sem gengið var frá árið 2011. Ég hvet ráðherrann og ráðuneytið til að halda áfram á þessari braut.
Ég mun á næstu dögum leggja aftur fram mál í þinginu um björgunarskóla Sameinuðu þjóðanna. Ég geri ekki endilega ráð fyrir að það fái afgreiðslu en vil hins vegar benda hæstv. ráðherra á að í umsögn hans ágæta ráðuneytis um það mál, sem var gefin út í apríl 2011, kemur fram að ráðuneytið hafi á þessu nokkurn áhuga og hafi sýnt því velvild og skilning að slík starfsemi færi af stað hér á landi. Háskóli Sameinuðu þjóðanna er nefnilega býsna merkileg stofnun og þær deildir sem reknar eru á Íslandi, Sjávarútvegsskólinn og Jarðhitaskólinn ásamt Jafnréttisskólanum, sem hefur að vísu verið rekinn skemur, eru allar mjög mikilvægar og mikilvægir þættir í samstarfi okkar við önnur lönd. Við eigum að halda áfram á þessari braut. Ræða mín nú er fyrst og fremst hvatning til ráðherrans að halda áfram þeirri góðu vinnu.