utanríkis- og alþjóðamál.
Virðulegi forseti. Ég tel að það sé reyndar svo að þeir sem harðast börðust fyrir því að evran yrði tekin upp voru einmitt þeir sem hafa þá sýn að það sé heillavænlegast fyrir Evrópu að þróast í átt til einhvers konar sambandsríkis. Það var sú kynslóð sem þekkti hremmingar og hrylling síðari heimsstyrjaldarinnar sem taldi að það væri allt tilvinnandi til að ná sem mestri samþættingu, samvinnu Evrópuþjóðanna og helst gera það að einhvers konar sambandsríki.
Virðulegi forseti. Hvað varðar vanda evrusvæðisins tók ég eftir því að í skýrslu hæstv. utanríkisráðherra var þess einmitt sérstaklega getið að ekki væri um vanda gjaldmiðilsins að ræða heldur einhvers konar skuldavanda ríkissjóðanna. Það er rétt upp að því marki að sá vandi birtist með þessum hætti. En það er þó þannig, og það þarf að huga að því, að til dæmis vandi Grikkja og skuldsetning gríska ríkissjóðsins á sér meðal annars orsök í því að menn höfðu þá trú þegar evran kom fram að fjármagnskostnaður yrði sá sami hvort sem menn lánuðu til Þýskalands eða Grikklands. Þetta endurspeglaðist í umræðu heima á Íslandi þar sem því hefur verið haldið fram aftur og aftur að með því að við tækjum upp evruna mundi vaxtakostnaður hér verða sá hinn sami og til dæmis í Þýskalandi.
Það hefur auðvitað sýnt sig að þetta var algjörlega röng forsenda vegna þess að grundvöllur fyrir evrunni var ekki til staðar. Ég er þess vegna um margt ósammála því að þetta sé ekki vandi gjaldmiðilsins, það er það að hluta til. Þetta er samþættur vandi sem snýr að gjaldmiðlinum sjálfum og þótt hann hafi haldið verðgildi sínu eða jafnvel styrkst gagnvart dollar er það ekki hin endanlegi mælikvarði málsins. Hinn endanlegi mælikvarði er auðvitað trú manna á því að hið evrópska hagkerfi standi undir þessari skuldsetningu og hún á sér m.a. (Forseti hringir.) upphaf í þeim misskilningi að gjaldmiðillinn væri þannig að það yrði sama vaxtastig á milli landanna.