141. löggjafarþing — 81. fundur,  14. feb. 2013.

utanríkis- og alþjóðamál.

593. mál
[21:24]
Horfa

utanríkisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (Sf):

Herra forseti. Ég vil í lok þessarar umræðu þakka hv. þingmönnum fyrir málefnalegt innlegg sem hér hafa fallið mörg í dag. Þetta hefur verið skemmtileg og fróðleg umræða og ég vil sérstaklega þakka þeim mörgu þingmönnum sem hafa lokið lofsorði á ýmislegt það sem þeim þykir að við höfum heldur gert betra en verra í mínu ráðuneyti. Sömuleiðis vil ég þakka þeim sem hafa sérstaklega tekið fram að þeir líta svo á að utanríkisþjónustan og starfsmenn hennar vinni Íslandi gott starf. Það er ánægjulegt svo ekki sé meira sagt.

Það hefur verið góður samhljómur í þessari umræðu í dag ef frá er talið eitt tiltekið málefni, þ.e. aðildarumsókn okkar gagnvart Evrópusambandinu. Að öðru leyti hafa menn farið jákvæðum orðum um þær áherslur sem við höfum lagt, svo sem um þróunarsamvinnu og vitaskuld þarf það engan að undra. Þingið sjálft hafði frumkvæði að því að gefa heldur í og framhlaða þá tillögu sem ég lagði fram á sínum tíma og var samþykkt einróma í þinginu. Það er þinginu til hróss að hafa viljað auka framlögin á árinu sem nú er að líða og næsta ári. Það sýnist mér staðfesta það sem ég hef lesið úr máli manna á umliðnum árum að jafnvel þótt Ísland hafi verið að ganga í gegnum erfiða tíma líta menn eigi að síður svo á að Ísland sem ríkt land hafi siðferðilega skyldu til að láta af höndum rakna til að hjálpa þjóðum sem eru að brjótast til bjargálna, hjálpa þeim til að hjálpa sér sjálfum í framtíðinni.

Einnig sýnist mér sem við tölum öll sömu röddu þegar kemur að norðurslóðum. Ég held að allir þingmenn sem hér hafa tekið til máls í dag hafi vikið að því að þeir séu ánægðir með þá miklu áherslu sem við höfum á síðustu árum og sérstaklega á síðasta ári lagt á norðurslóðir. Ég dreg ekki úr því að ég tel að norðurslóðir séu ein af þeim gáttum til framtíðarinnar sem munu reynast Íslendingum hvað mikilvægastar á næstu áratugum.

Eins og kemur glöggt fram í minni skýrslu og í ræðu minni fyrr í dag er ég þeirrar skoðunar að við Íslendingar getum sótt mörg tækifæri til norðurslóða. Það er enginn efi í mínum huga um það að ef olía finnst t.d. á Drekasvæðinu eiga Íslendingar að gera það sem þeir geta til að nýta það til að auka verðmæti þjóðarinnar. Hins vegar legg ég á það skýra áherslu að það er mjög mikilvægt að við notum öll þau færi sem okkur gefast til að tryggja að þar sé farið að öllum ströngustu og ýtrustu reglum um umhverfisvernd. Hvernig förum við að því að tryggja það? Við gerum það með því að taka okkur mjög virkt hlutverk sem norðurskautsríki og til þess þurfum við, af því að við erum lítil þjóð, að sýna kraft og frumkvæði. Ég tel að starf síðustu fjögurra ára af norðurslóðum sýni einmitt að það er hægt að yfirvinna fámennið með frumkvæði og látlausu starfi.

Herra forseti. Í þessari umræðu hef ég reynt eftir föngum að svara öllum þeim spurningum sem til mín hefur verið beint í andsvörum og það er í sjálfu sér ekki mikið sem ég á eftir að svara. Þó kom skýrt fram í andsvörum í dag hjá hv. þm. Jóni Bjarnasyni og reyndar sumum öðrum að þeir telja að sérlausnir í sjálfu sér í aðildarsamningum við Evrópusambandið munu ekki bjarga málum Íslendinga til frambúðar. Það kom fram í máli tveggja hv. þingmanna að þeir litu svo á að þar væri um einhvers konar skemmri skírn að ræða. Þetta er alrangt. Sérlausnir eru varanlegar nema annað sé tekið fram. Þær hafa nákvæmlega sama gildi og öll önnur ákvæði í grunnsáttmálum Evrópusambandsins, svo það sé algerlega skýrt. Hér er um misskilning að ræða hjá þessum hv. þingmönnum.

Hv. þm. Ragnheiður E. Árnadóttir beindi til mín spurningum sem vörðuðu loftrýmisgæslu. Ég vil segja alveg skýrt, af því að hún spurði mig um það, að mín túlkun á stjórnarsáttmálanum að því er varðar loftrýmisgæslu er ekki sú hin sama og hv. þm. Ragnheiður Elín las úr ræðum ýmissa þingmanna fyrr í dag. Ég leit svo á á sínum tíma að þar væri um að ræða mikilvægan þátt í þátttöku okkar í Atlantshafsbandalaginu en ég gerði mér algerlega grein fyrir því að var umdeilt, ekki bara innan stjórnarliðsins hjá hv. þingmönnum Vinstri grænna, heldur voru líka gerðar athugasemdir við það úr Sjálfstæðisflokknum, svo það komi algerlega skýrt fram. En þetta er eitt af þeim málum sem við þingið ákváðum sameiginlega að leggja inn til þjóðaröryggisnefndar þegar samþykkt var þingsályktunartillaga um að hún tæki að sér að gera tillögur til ráðherra um það hvernig þjóðaröryggi skyldi háttað í framtíðinni. Þetta er eitt af þeim málum sem tillögur munu koma um. Að sjálfsögðu er mjög mikilvægt að hægt sé að ná sátt um þetta en ég geri hins vegar ekki athugasemdir við að menn hafi á þessu sterkar skoðanir.

Eitt af því sem ég tek eftir að menn hafa ekki rætt eins mikið í dag og á umliðnum árum er staðan á evrusvæðinu. Í fyrri umræðum á síðustu þremur árum má heita að hér hafi hver andstæðingur Evrópusambandsins sem talað hefur gert að umræðuefni að fresta þyrfti eða slíta viðræðum við Evrópusambandið sökum þeirrar erfiðu stöðu sem væri á evrusvæðinu. Það er ekki nokkur maður sem talar um það í dag. Það er vel skiljanlegt. Staðan á evrusvæðinu hefur verið að breytast til batnaðar. Auðvitað er svæðið ekki komið að öllu leyti út úr því stormviðri sem þar hefur geisað en hitt er þó allra mála sannast að þróunin er mjög jákvæð. Allar skammtímatölur sem berast af evrusvæðinu núna eru t.d. jákvæðar og það er hægt að benda á fjölmörg lönd sem eru virkilega að taka sér tak og eru að komast út úr sínum vandamálum. En það er alveg rétt sem t.d. hv. þm. Ásmundur Einar Daðason sagði fyrr í dag að lönd eins og Spánn eiga enn þá í töluverðum vandræðum.

Merkustu tíðindin kannski af þessum slóðum eru þau að lánshæfismatsfyrirtækin hækkuðu Grikkland, sem talið var að gæti hrokkið út úr evrusvæðinu, um ekki einn flokk, ekki tvo heldur heila sex flokka. Evran hefur sýnt það að jafnvel í þyngstu áföllum eins og þeim sem hafa gengið yfir á síðustu árum er hún stöðugur gjaldmiðill. Eins og kom fram í samræðu okkar hv. þm. Illuga Gunnarssonar yfir þetta púlt fyrr í kvöld hefur evran hækkað gagnvart bandaríkjadal. Hún var í byrjun ágúst, eins og kemur fram í skýrslu Seðlabankans um gjaldmiðilsmál, 6,5% sterkari en bandaríkjadalur, en að meðaltali hefur evran, frá því að hún kom í þennan heim, ekki verið hærri en 4%. Með öðrum orðum: Jafnvel í þessu stormviðri hefur evran heldur styrkst. Það undirstrikar enn frekar það sem ég hef sagt, að kreppa evrusvæðisins var ekki gjaldmiðilskreppa heldur skuldakreppa.

Mér finnst líka mikilvægt þegar menn eru að tala um evruna og hversu vel hún henti Íslandi að við horfum á allar stærðir í því máli. Það er alveg rétt sem hv. þm. Illugi Gunnarsson sagði fyrr í kvöld að í skýrslu Seðlabankans má lesa að Ísland er kannski eitt af þeim löndum sem er fjærst því að geta nýtt sér til fulls ávinninga evrunnar. Ástæðan er sú að hagsveiflan hefur verið öðruvísi. Við vitum þó af reynslunni að hagsveiflur landa sem ganga inn í Evrópusambandið leita að sömu sveiflu og er í gangi innan Evrópusambandsins. Ísland er hins vegar öðruvísi en flest lönd að því marki að við byggjum á náttúruauðlindum og við vitum að þar geta orðið stormviðri líka. Það er þess vegna sem ég legg áherslu á að ein af forsendum þess að við getum farsællega gengið í Evrópusambandið er sú að við tryggjum að afkoma grunnatvinnuvegarins, sjávarútvegsins, sé það góð að hann geti sjálfur jafnað út sveiflur.

Frú forseti. Það hafa líka orðið mjög athyglisverðar samræður milli mín og ýmissa þingmanna um EES. Ég er þeirrar skoðunar að við stöndum frammi fyrir ákveðnum erfiðleikum varðandi samstarfið innan EES. Þróunin hefur verið sú að Evrópusambandið hefur í reynd breyst verulega þannig að við höfum í ýmsum efnum átt erfitt með að innleiða ýmsar þær gerðir sem við þurfum samkvæmt EES-samningnum. Við höfum reynt að fara tveggja stoða lausnina, en ég hef bent á það hér og spurt menn hvort verulegur munur sé á því, eðlismunur, að framselja t.d. þann part af ríkisvaldi sem er sektarvald til ESA, sem er líka yfirþjóðlegt vald með erlendum þjóðum í forsvari fyrir, eða til ESB. Ég er ekki viss um að svarið við því sé já og reyndar held að svo sé ekki.

Það er alveg klárt að varðandi EES held ég að sé heppilegt fyrir okkur Íslendinga að nota þá endurskoðun stjórnarskrárinnar sem stendur fyrir dyrum til að breyta henni þannig að hún heimili (Forseti hringir.) í ríkari mæli framsal á ríkisvaldi.