utanríkis- og alþjóðamál.
Frú forseti. Ég þarf örstuttan tíma til að svara þessu. Aðildarsamningur er jafngildur grunnsáttmálanum, það er ekkert flóknara en það. Þær sérlausnir sem við náum fram í ýmsum efnum, sem ég er sannfærður um að við munum ná fram, munu hafa lagalegt gildi og munu vara meðan samningurinn stendur nema annað sé tekið fram.
Við áttum skemmtilegar viðræður í dag um Noreg og Ísland og möguleikana á því að ná upp sérstöku fiskveiðistjórnarsvæði fyrir Ísland. Á sínum tíma náðu Norðmenn því fram í samningum að þeir hefðu tímabundna sjálfsstjórn. Ég rakti það hér af hverju ég teldi að rök okkar væru miklu sterkari en Norðmanna á sínum tíma, fyrir utan breytingar sem orðið hafa bæði á sameiginlegri fiskveiðistefnu Evrópusambandsins og viðhorfum innan sambandsins. Af þeim dró ég þá ályktun að ég teldi að okkur mundi takast að ná því varanlega. En það verður auðvitað að landa þeim laxi.
Ef menn hefðu haft sömu viðhorf og sumir þeirra hv. þingmanna sem hér hafa talað í dag á tímum þorskastríðanna, ja herra guð. Ekki hefði ég treyst slíkum mönnum til að semja um hag Íslands ef menn ganga til samninga með því hugarfari fyrir fram að þeir hljóti að tapa. Það er algerlega fráleitt hugarfar.
Ég er þeirrar skoðunar að við eigum að ganga til slíkra samninga af fullri djörfung og kjarki og berjast grimmt, beita rökum. Ég er þeirrar skoðunar að við munum hafa fullan sigur í þessu tiltekna máli. Ég nefni þetta sérstaklega vegna þess að þetta er kannski það mál sem ég hef oftast nefnt sem dæmi um sérlausn sem við þurfum á að halda. Ef við náum því fram þá mun hún hafa lagagildi og vera jafnvæg öllum öðrum reglum sem gilda um Evrópusambandið.