141. löggjafarþing — 82. fundur,  15. feb. 2013.

minnst fyrstu konunnar á þingi.

[10:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Hv. alþingismenn. Í dag, 15. febrúar, eru liðin rétt 90 ár frá því að fyrsta konan, Ingibjörg H. Bjarnason skólastjóri, gekk inn í þennan sal sem kjörinn alþingismaður. 35. löggjafarþing var sett fimmtudaginn 15. febrúar 1923. Fjórum dögum síðar var kjörbréf Ingibjargar samþykkt og hún vann eið að stjórnarskránni. Ingibjörg H. Bjarnason var kjörin á Alþingi í landskjöri sumarið áður, 8. júlí 1922.

Í framsöguræðu sinni fyrir áliti kjörbréfanefndar sagði Jóhannes Jóhannesson meðal annars:

„Þetta verður í fyrsta sinn sem kona tekur sæti á Alþingi og ég vil láta í ljós gleði mína fyrir þeim atburði. Ég óska hv. 6. landskjörnum þingmanni, Ingibjörgu H. Bjarnason, farsældar og ánægju í starfi sínu og þess að hluttaka kvenna í löggjafarstarfinu megi verða landi og lýð til blessunar.“

Nú 90 árum síðar getum við með fullri vissu sagt að sú ósk framsögumannsins hafi sannarlega ræst. Í tilefni þessa dags er á veggnum fyrir aftan forseta málverk eftir Gunnlaug Blöndal í eigu Alþingis af Ingibjörgu H. Bjarnason.

Íslenskum konum óska ég til hamingju með daginn og raunar Íslendingum öllum.