141. löggjafarþing — 82. fundur,  15. feb. 2013.

störf þingsins.

[10:50]
Horfa

Árni Þór Sigurðsson (Vg):

Frú forseti. Ég vil eins og aðrir fagna merkum tímamótum í jafnréttis- og kvenfrelsisbaráttu þjóðarinnar þegar þess er minnst að 90 ár eru liðin síðan fyrsta konan tók sæti á Alþingi, Ingibjörg H. Bjarnason. Vegferðin í átt að auknu jafnrétti hefur stundum verið þyrnum stráð í þessu samfélagi en mörg ánægjuleg skref hafa verið tekin, m.a. á yfirstandandi kjörtímabili, veigamiklir áfangar sem skipta máli í þeirri baráttu. Ég vil nefna austurrísku leiðina og sænsku leiðina svokölluðu í kynferðisofbeldismálum sem hafa verið lögleiddar hér á landi, sáttmála Evrópuráðsins um varnir gegn kynferðislegri misneytingu, samstarfi þriggja ráðuneyta um baráttu gegn klámi og samráði um meðferð nauðgunarmála og að unnið er nú að fullgildingu sáttmála Evrópuráðsins um ofbeldi gegn konum.

Það hefur sannarlega orðið viðhorfsbreyting en enn höfum við ekki náð fullkomnu jafnrétti í samfélagi okkar eins og dæmin mörg sanna. Því miður verðum við enn, árið 2013, vitni að skilningsleysi þegar kynfrelsi er annars vegar, svo sem í nýlegum dómi Hæstaréttar sem komið hefur til umfjöllunar á vettvangi allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis og ég leyfi mér að nefna umfjöllun helsta talsmanns Sjálfstæðisflokksins í réttarfarsmálum í komandi kosningum. Slík viðhorf eru uggvænleg en það má ekki láta deigan síga, frú forseti. Vinstri hreyfingin – grænt framboð hefur frá upphafi talað fyrir mörgum þeirra mála sem orðið hafa að veruleika á þessu kjörtímabili en lengi varð þó lítið ágengt í þeim málum. Vinstri hreyfingin – grænt framboð er traustasta svarið þegar kemur að baráttumálum jafnréttis og kvenfrelsis og mun halda áfram merki kvenfrelsis á lofti á komandi árum.